Áhugasamir netverjar geta nú fylgst með öllum helstu hreyfingum Bárðarbungu í beinni á netinu en vefmyndavél var komið upp á Grímsfjalli í Vatnajökli í gær. Grímsvötn eru í um þrjátíu kílómetra fjarlægð frá eldstöðinni.
Vísindamenn héldu á fjallið í gær með aðstoð Landhelgisgæslunnar en í ferðinni var einnig komið fyrir nýjum jarðskjálftamæli á Bárðarbungu.
Björn Oddsson, verkefnastjóri hjá Almannavarnardeild setti vélina upp, en hún er samstarfsverkefni Almannavarna, Jöklarannsóknarfélagsins, Neyðarlínunnar og fyrirtækisins M&T er RÚV greindi frá.
Mælingar vísindamanna sýna áframhaldandi virkni í Bárðarbungu en engin merki eru um gos. Samkvæmt tilkynningu Veðurstofu er ekki hægt að útiloka að þessi virkni geti leitt til sprengigoss sem þá mundi valda jökulhlaupi og losun ösku út í andrúmsloftið.
Jarðvísindamenn flugu undir kvöld í gær yfir svæðið í þyrlu Gæslunnar, til að meta aðstæður. Síðustu sjö ár hefur virkni í Bárðarbungu aukist jafnt og þétt.
Í kjölfar gossins í Grímsvötnum árið 2011 datt virknin tímabundið niður, en fór fljótlega að aukast aftur. Skjálftahrina varð á svæðinu í maí í vor, en hún var mun minni en hrinan núna er þegar orðin.
Fylgjast má hér með vefmyndavélinni á Grímsfjalli.

