Hraungos er hafið norðan Dyngjujökuls Sveinn Arnarsson skrifar 29. ágúst 2014 01:00
Hraungos er hafið norðan Dyngjujökuls. Þetta staðfestir Veðurstofa Íslands. Vefmyndvélar Mílu sýna að kvika streymir upp á yfirborðið. Kvikan hefur náð að brjóta sér leið upp á yfirborðið norðan jökulsins á íslausu svæði. Gosið er í Holuhrauni norðan Dyngjujökuls og sunnan Öskju þar sem sprungur hafa verið að myndast í hrauninu og við jökulsporðinn. Vefmyndavélar Mílu gefa til kynna að gosið sé ekki stórt í augnablikinu en ekki er hægt með vissu að gera sér grein fyrir stærðinni af myndunum einum að dæma.Hægt er að horfa á aðra vefmyndavél Mílu í spilaranum efst í fréttinni. Á þessu svæði er berggangur sem liggur frá Bárðarbungu og á íslaust svæði norðan Dyngjujökuls. Gangurinn er talinn vera rúmlega 40 kílómetra langur og innihalda um 350 milljónir rúmmetra af kviku svo nægur er efniviðurinn í gos á þessu svæði.Uppfært klukkan 03:00 Gosið virðist hafa minnkað töluvert á þriðja tímanum. Það sýna vefmyndavélar auk þess sem Rögnvaldur Ólafsson hjá Almannavarnadeild lögreglunnar staðfesti hið sama í samtali við Vísi. Talið er að sprungan sé í kringum 100 metra löng og lítil öskumyndun. Litakóði vegna flugs hefur verið færður upp í rautt og búið að lýsa 120 sjómílna hættusvæði um hverfis eldstöðina í Holuhrauni. Þó hefur engin flugumferð verið á svæðinu í nótt. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir að eldgos hafi engin áhrif á flugumferð en grannt sé fylgst með gangi mála.Uppfært klukkan 03:15 Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra greinir frá því að nánara mat vísindamannanna tveggja hjá Veðurstofu Íslands, sem staddir eru í Holuhrauni, sé að sprungan þar sem gýs sé um 1 kílómetri á lengd. Talið var í upphafi að sprungan, sem er um fimm kílómetra norðan Dyngjujökuls og sunnan Öskju, væri 100-300 metra löng. Nú virðist sem hún sé töluvert lengri.Uppfært klukkan 04:25 Enga virkni er að sjá á vefmyndavélum Mílu á svæðinu. Þorbjörg Ágútsdóttir, doktorsnemi við háskólann í Cambridge, sagði í samtali við Vísi á fimmta tímanum að verulega hefði dregið úr gosvirkni. Hún hefði verið mun meiri fyrr í kvöld en nú væri hún afar lítil. Þorbjörg, sem stödd er í um fimm kílómetra fjarlægð frá gosinu ásamt öðrum vísindamanni, mun standa vaktina fram á morgun. Þau eru hluti af átta manna teymi íslenskra vísindamanna og nema við háskólann í Cambridge. skjáskot/mila.is Vefmyndavél Mílu 1. Vefmyndavél Mílu 2.
Bárðarbunga Tengdar fréttir „Erfitt að útskýra með öðru en að þarna sé töluverður hiti undir“ Víðir Reynisson, deildarstjóri á almannavarnadeild lögreglu, segir sigdældirnar 4-6 kílómetra á lengd og verði farið í flug strax í birtingu í fyrramálið til að meta aðstæður að nýju. 27. ágúst 2014 22:34 Skjálftavirkni enn mikil og gos talið líklegt Athuganir hafa leitt í ljós að ekki var eldgos undir Dyngjujökli í gær. Skjálftavirkni í Bárðarbungu og Dyngjujökli er samt enn mjög mikil og fagstjóri jarðvár hjá Veðurstofunni segir enn líkur á gosi. Engu að síður hafa almannavarnir fært viðbúnaðarstig norðan Vatnajökuls niður í hættustig úr neyðarstigi. 24. ágúst 2014 21:30 Er Bárðarbungu ekki um að kenna? Vísindamenn hallast frekar að því að jarðhræringarnar undir Vatnajökli leiði til eldgoss. Komnar eru fram kenningar um að upptöku óróans sé frekar að leita í eldstöðvakerfi Öskju en Bárðabungu. Kröflueldar virðast vera nærtækasta dæmið um framhaldið. 26. ágúst 2014 08:50 Sérfræðingarnir farnir í loftið Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur hélt í morgun ásamt sérfræðingum Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í eftirlitsflug í flugi TF-SIF á Vatnajökul. 28. ágúst 2014 09:11 Virknin þokast áfram til norðurs Skjálftavirkni er enn mjög mikil við Bárðarbungu og hafa rúmlega 500 skjálftar mælst frá miðnætti. 26. ágúst 2014 12:03 Bárðarbunga nefnd eftir jarðbundnum Bárði Hvers vegna heitir fjallið Bárðarbunga? 21. ágúst 2014 15:57 Sigkatlarnir 10-15 metra djúpir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir að sigkatlarnir suðsuðaustur af Bárðarbungu séu fjórir talsins á 4-6 kílómetra langri sprungu. 27. ágúst 2014 23:12 Kvikan gæti náð inn í Öskju og tendrað öflugt sprengigos Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir hættu á að kvikan frá Bárðarbungu nái inn í eldstöðvakerfi Öskju. 25. ágúst 2014 19:45 Lengist um fjóra kílómetra á dag Síðustu tíu daga hefur berggangurinn undir Vatnajökli lengst um fjóra kílómetra á dag, að meðaltali. Sérfræðingur segir atburðinn einn þann markverðasta sem Íslendingar hafa orðið vitni að, en stærð berggangsins sé vanmetin og stefna hans beint á Öskju allrar athygli verð. 27. ágúst 2014 07:00 Tvö eldfjöll á Íslandi nú talin ógna fluginu Alþjóðaflugið hefur nú fengið viðvörun um að tvær íslenskar eldstöðvar sýni merki um óróa eða séu að búa sig undir eldgos. 28. ágúst 2014 16:45 Nýir sigkatlar gætu bent til goss Fjögurra til sex kílómetra langar sprungur hafa myndast sunnan við af Bárðarbungu. Þetta staðfestir starfsmaður Veðurstofu Íslands. 27. ágúst 2014 21:56 Mikið magn kviku hefur safnast saman á stuttum tíma Skjálftavirkni er mikil undir Dyngjujökli og hefur færst í aukana yfir helgina. Norðurendi berggangsins sem hefur myndast undir jöklinum nær nú norður fyrir jökulinn. Versta hugsanlega sviðsmyndin að allur berggangurinn opnist sem sprunga, segir eldfjalla 25. ágúst 2014 08:55 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
„Erfitt að útskýra með öðru en að þarna sé töluverður hiti undir“ Víðir Reynisson, deildarstjóri á almannavarnadeild lögreglu, segir sigdældirnar 4-6 kílómetra á lengd og verði farið í flug strax í birtingu í fyrramálið til að meta aðstæður að nýju. 27. ágúst 2014 22:34
Skjálftavirkni enn mikil og gos talið líklegt Athuganir hafa leitt í ljós að ekki var eldgos undir Dyngjujökli í gær. Skjálftavirkni í Bárðarbungu og Dyngjujökli er samt enn mjög mikil og fagstjóri jarðvár hjá Veðurstofunni segir enn líkur á gosi. Engu að síður hafa almannavarnir fært viðbúnaðarstig norðan Vatnajökuls niður í hættustig úr neyðarstigi. 24. ágúst 2014 21:30
Er Bárðarbungu ekki um að kenna? Vísindamenn hallast frekar að því að jarðhræringarnar undir Vatnajökli leiði til eldgoss. Komnar eru fram kenningar um að upptöku óróans sé frekar að leita í eldstöðvakerfi Öskju en Bárðabungu. Kröflueldar virðast vera nærtækasta dæmið um framhaldið. 26. ágúst 2014 08:50
Sérfræðingarnir farnir í loftið Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur hélt í morgun ásamt sérfræðingum Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í eftirlitsflug í flugi TF-SIF á Vatnajökul. 28. ágúst 2014 09:11
Virknin þokast áfram til norðurs Skjálftavirkni er enn mjög mikil við Bárðarbungu og hafa rúmlega 500 skjálftar mælst frá miðnætti. 26. ágúst 2014 12:03
Bárðarbunga nefnd eftir jarðbundnum Bárði Hvers vegna heitir fjallið Bárðarbunga? 21. ágúst 2014 15:57
Sigkatlarnir 10-15 metra djúpir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir að sigkatlarnir suðsuðaustur af Bárðarbungu séu fjórir talsins á 4-6 kílómetra langri sprungu. 27. ágúst 2014 23:12
Kvikan gæti náð inn í Öskju og tendrað öflugt sprengigos Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir hættu á að kvikan frá Bárðarbungu nái inn í eldstöðvakerfi Öskju. 25. ágúst 2014 19:45
Lengist um fjóra kílómetra á dag Síðustu tíu daga hefur berggangurinn undir Vatnajökli lengst um fjóra kílómetra á dag, að meðaltali. Sérfræðingur segir atburðinn einn þann markverðasta sem Íslendingar hafa orðið vitni að, en stærð berggangsins sé vanmetin og stefna hans beint á Öskju allrar athygli verð. 27. ágúst 2014 07:00
Tvö eldfjöll á Íslandi nú talin ógna fluginu Alþjóðaflugið hefur nú fengið viðvörun um að tvær íslenskar eldstöðvar sýni merki um óróa eða séu að búa sig undir eldgos. 28. ágúst 2014 16:45
Nýir sigkatlar gætu bent til goss Fjögurra til sex kílómetra langar sprungur hafa myndast sunnan við af Bárðarbungu. Þetta staðfestir starfsmaður Veðurstofu Íslands. 27. ágúst 2014 21:56
Mikið magn kviku hefur safnast saman á stuttum tíma Skjálftavirkni er mikil undir Dyngjujökli og hefur færst í aukana yfir helgina. Norðurendi berggangsins sem hefur myndast undir jöklinum nær nú norður fyrir jökulinn. Versta hugsanlega sviðsmyndin að allur berggangurinn opnist sem sprunga, segir eldfjalla 25. ágúst 2014 08:55