Logi: Við erum allir eins og bræður

„Þessi leikur er númer eitt á mínum ferli, með öllum liðum og á öllum þessum árum. Þetta er stærsti leikurinn á ferlinum," sagði Logi Gunnarsson og er ekkert að skafa af hlutunum enda engin ástæða til þess.
„Stærsta markmiðið sem við getum sett okkur sem íslensk körfuboltaþjóð er að komast á stórmót og þetta var fjarlægur draumur þegar ég byrjaði. Það er rosalega gaman að vera í þessari stöðu og við eigum að njóta þess að búnir að vinna okkur það vinna að vera í svona stöðu," sagði Logi sem hefur spilað 103 landsleiki fyrir Ísland.
„Núna þurfum við bara að klára þessa ferð sem við erum á með því að vinna þennan leik," sagði Logi. Hann segir að allir í liðinu ætli að passa að slaka ekki á þótt að liðið sé búið að endurheimta Jón Arnór Stefánsson.
„Við sem höfum verið að spila mikið þurfum að halda áfram að vera áræðnir og megum ekki slaka á í því þótt að Jón sé kominn. Við þurfum að vaða áfram á körfuna og halda áfram að dreifa boltanum vel eins og við höfum verið að gera," sagði Logi og bætti við:
„Ég hef enga trú á öðru en að við gerum það. Við erum búnir að vera með Jón í allt sumar og vorum að spila mjög flottan leik á öllum æfingum þegar hann var með. Við höldum því bara áfram," sagði Logi. Hann segir liðið samheldið og þar sé sterk liðsheild.
„Við erum flestir í þessu liðið búnir að vera að spila saman í tíu ár og svo hafa bæst inn ungir leikmenn á þessum tíma sem er frábært. Við erum mjög samstilltir og þetta er góð blanda af ungum og eldri leikmönnum. Við fáum svo mikið úr því að gera þetta saman því við erum allir mjög nánir og allir eins og bræður," sagði Logi.
Tengdar fréttir

Arnar sá til þess að Bretarnir njósnuðu ekki á æfingu Íslands
Aðstoðarþjálfari landsliðsins fór yfir allar myndavélarnar í húsinu.

Mættur til að gera það sem þjálfarinn segir mér að gera
Jón Arnór Stefánsson hitti landsliðið í London í gær og segist vera í góðu standi fyrir leikinn mikilvæga.

Enginn Stefánsson upp á stigatöflunni
Bretarnir þurfa að breyta stigatöflunni fyrir leikinn á morgun.

Pavel: Yrði alveg sáttur með að þetta yrði síðasti leikurinn minn á ferlinum
Pavel Ermolinskij er spenntur fyrir leiknum í kvöld gegn Bretum en með sigri tryggir íslenska liðið sér sæti á Evrópumótinu í körfubolta. Þrátt fyrir að glíma við meiðsli er Pavel tilbúinn að gefa allt í leikinn í kvöld

Ísland aldrei tapað í Koparkassanum í London
Landsleikurinn gegn Bretlandi annað kvöld fer fram í íþróttahöll þar sem Ísland hefur aldrei tapað.

Jón Arnór verður með Íslandi gegn Bretum
Besti körfuknattleiksmaður þjóðarinnar tekur áhættuna og ætlar að hjálpa til við að koma Íslandi á EM 2015.

Jón Arnór mættur til London: Sumir segja að ég sé "glory hunter“
"Það kviknaði á gamla keppnismanninum og ég varð bara að taka þátt í þessu," segir Jón Arnór Stefánsson sem er mættur til London.