Warren Buffet kaupir bílasölukeðju Finnur Thorlacius skrifar 6. október 2014 16:22 Warren Buffet misheppnast sjaldan í fjárfestingum.
Allar fjárfestingar auðkýfingsins Warren Buffet vekja athygli, en það er sjaldan sem honum misheppnast á því sviðinu. Síðustu kaup hans vöktu mikla athygli í bílaheiminum því hann keypti stærstu bílasölukeðju í Bandaríkjunum sem er í einkaeigu. Keðjan heitir Van Tuyl Group og á 78 bílasölur í 10 ríkjum Bandaríkjanna. Van Tuyl velti 968 milljörðum króna á síðasta ári svo þar fer ekki lítið fyrirtæki. Þar sem að bílasölukeðjan er ekki á hlutabréfamarkaði, heldur í einkaeigu þarf Buffet ekki að greina frá kaupverðinu. Nafn þessa nýja fyrirtækis Buffet mun breytast í Berkshire Hathaway Automotive. Samþykkja þarf kaup Buffet hjá opinberum aðilum, sem og bílaframleiðendum en búast má við því kaupin verði endanlega kláruð á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Fjárfestingar Warren Buffet liggja víða en fæstir áttu von á því að hann veðjaði á bílageirann, en góð sala bíla í Bandaríkjunum og góðar áframhaldandi horfur hafa vafalaust ráðið miklu um þessi kaup hans.
Mest lesið Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Fleiri fréttir Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent