Ertu að tapa þér?

Gott getur verið að nýta morgnana í örstutta hugleiðslu, þó að það sé ekki nema til þess að vera meðvituð um öndun og fylla líkamann af jákvæðum og uppbyggilegum hugsunum. Yfir daginn geturðu svo gert þessar þrjár skyndihugleiðslur sem færa þig aftur í núvitundarástand.
Fylgstu með
Næst þegar þú ert algjörlega að tapa þér og blóðþrýstingurinn kominn upp úr öllu valdi ímyndaðu þér þá að þú sért að horfa á þig á bíóskjá. Með því að færa sjálfið út úr aðstæðunum og horfa á þær sem áhorfandi áður en að þú tekur ákvörðun um næsta skref. Þessi aðferð færir þér aðra sýn á verkefni dagsins og þú tekur meðvitaða ákvörðun um framhaldið.
Lifðu þig inn í verkefnið
Vertu í núinu, sama hvað þú ert að gera. Jafnvel þegar þú ert að vaska upp. Finndu fyrir volgu vatninu, sjáðu sápuna freyða. Fylgstu með því sem er að gerast akkurat núna. Hvernig líður þér? Finnurðu fyrir hjartanu, ertu að anda djúpt og reglulega eða ótt og títt?
Dragðu andann
Enn og aftur þegar stressið og streitan gerir vart við sig og þú átt eftir að gera það mikið að þú sérð ekki fram úr "to do" listanum. Andaðu, dragðu djúpt andann og hugsaðu „Ég er," andaðu frá þér og hugsaðu „friður". „Ég er friður."
Tengdar fréttir

Allt sem þú þarft að vita um hugleiðslu
Mikil vitundarvakning hefur orðið á síðustu árum um mikilvægi þess að taka sér tíma til að slaka á og umræða um hugleiðslu og jóga hefur aukist verulega.

Hvers vegna hugleiðsla?
Við hættum aldrei að hugsa því að heilinn er dugleg og falleg vél sem tekur sér aldrei frí. En að tengja sjálfsmynd okkar og persónuleika við þessa vél leiðir til vansældar. Þannig verður skortdýrið til – þegar við trúum því að við séum hugsanir okkar.

5 ástæður þess að þú ættir að byrja að stunda hugleiðslu
Vinsældir hugleiðslu í hinum vestræna heimi eru sívaxandi enda afar dýrmætt að geta staldrað við í amstri dagsins og upplifað innri frið.

Æfing í að vera í núinu
Í Meistaramánuði huga margir að heilsunni í auknum mæli, líkamlegri sem andlegri. Hugleiðsla og þjálfun í núvitund getur hjálpað mörgum í dagsins önn, það þekki Gunnar Friðriksson af eigin raun.

Handavinna - lykillinn að hamingju
Sérfræðingar telja að handavinna geti hjálpað þeim sem þjást af kvíða, þunglyndi eða langvarandi sársauka. Handavinna getur einnig hjálpað til við að losa um stress, auka gleði og hægir á hrörnun heilans.