Lak lagi Silvíu Nætur: "Fyrirgefðu Ísland“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. nóvember 2014 19:08 Gaukur ætlar að ganga á milli húsa og biðjast afsökunar. Vísir/Daníel/Valli
Gaukur Úlfarsson leikstjóri og maðurinn bakvið persónu Silvíu Nætur lak lagi hennar, Til hamingju Ísland, á netið áður en lögin í Söngvakeppni sjónvarpsins voru kynnt fyrir landsmönnum árið 2006. Þetta kom fram í þættinum Árið er á Rás 2 í dag þar sem árið 2006 var til umfjöllunar. „Ég held það sé óhætt að segja að ég hafi verið andsetinn af Silvíu Nótt á þessum tíma. Bæði ég og Ágústa lifðum tvöföldu lífi – eða allavega ég að því leytinu til að ég gat fengið útrás fyrir alls konar hrekkjabrögð í skjóli Silvíu Nætur. Þarna fannst mér eins og ef Silvía Nótt væri að keppa þá myndi hún beita öllum brögðum og svindla eins og hún gæti til þess að sigra. En ég vil biðja þjóðina afsökunar. Fyrirgefðu Ísland,“ segir Gaukur í samtali við Vísi. Höfundur lagsins er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og textann samdi Ágústa Eva Erlendsdóttir ásamt Gauki Úlfarssyni. Höfundar lagsins sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar lekans þar sem þeir hörmuðu það að lagið hafi komist í dreifingu á netinu. Þar sagði meðal annars að lekinn hafi algjörlega verið gegn vilja höfunda og gerst án þeirrar vitundar. Farið var fram á að Silvíu Nótt yrði vísað úr keppni en tók RÚV þá ákvörðun að lagið fengi að halda áfram keppni. Í kjölfarið lagði Kristján Hreinsson fram stjórnsýslukæru í málinu en var henni vísað frá. Eins og kunnugt er sigraði Silvía Nótt í undankeppninni og flutti lag sitt í Aþenu í Grikklandi 19.maí 2006. Lagið var afar umdeilt og komst það ekki áfram í aðalkeppnina. „Ég mun á næstunni fara hús í hús og biðja fólk afsökunar persónulega,“ segir Gaukur að lokum, á léttum nótum.
Tengdar fréttir Erkióvinir eigast við á sviði Keppnin um titilinn Fyndnasti maður Íslands stendur nú sem hæst. Á síðasta undanúrslitakvöldinu, sem fram fer í Austurbæ í kvöld, munu erkióvinirnir Eyvindur Karlsson og Egill „Gillzenegger“ Einarsson stíga á svið til að skemmta salnum. 22. mars 2007 10:00 „I'll be back“ Pistlaskrif mín á þessari leiðaraopnu byggjast á þeirri hugmynd að fátt skipti meira máli en stjórnmál. Er það starf mitt að velta upp og svara mikilvægum spurningum á borð við: Hvað er grænna en íslenskur torfbær? 17. október 2014 07:00 Silvía Nótt seld til Svíþjóðar Hópnum sem stendur að baki Silvíu Nótt hefur borist tilboð frá sænsku sjónvarpsstöðinni TV4 en hún er stærsta einkarekna sjónvarpsstöðin þar í landi. Gaukur Úlfarsson, leikstjóri þáttanna, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið og sagði þetta vissulega mikil gleðitíðindi. 17. maí 2007 10:15 Í hóp með Borat og Silvíu Nótt „Mikil endalaus andskotans ládeyða ríkir á öldum ljósvakans hér á landi. Er virkilega enginn sem leggur í þessar öldur? Fyrir utan gömlu og góðu Gufuna er fátt að hlusta á, nema ef til vill Útvarp Sögu.“ Svona hefst síðasta bloggfærsla hins geðstirða Georgs Bjarnfreðarson sem vaknar til lífsins á skjám landsmanna þegar sjónvarpsþátturinn Næturvaktin hefur göngu sína. 12. mars 2007 00:01 Nóg komið af öskrum Umræðan í íslenskri pólitík er eins og banvænt krabbamein í samfélaginu að mati Gauks Úlfarssonar, kvikmyndaleikstjóra og eins forsprakka Besta flokksins. Gaukur segir að pólitíkin sé of vond til að gott fólk hætti sér út í hana og Íslendingar séu enn jafn frekir og þeir voru fyrir hrun. 26. september 2011 10:15 Silvíu vantaði 14 stig upp á Silvía Nótt var þrettánda af 23 keppendum í undankeppni Eurovision á fimmtudagskvöldið. Pólverjar voru næstir því að komast inn með sjötíu stig og Belgar voru í tólfta sæti. 22. maí 2006 05:45 Tugmilljóna samningur Silvíu og Frímanns „Já, við erum að bjóða til veislu í hvalveiðiskipinu Eldingu í dag. Með kampavínsglas í annarri og hvalrengi í hinni,” segir Jakob Frímann Magnússon hljómplötuútgefeandi með meiru. Klukkan ellefu í dag siglir hvalveiðiskip úr Reykjavíkurhöfn með frítt föruneyti. 10. febrúar 2007 13:45 Einsdæmi að púað sé fyrir flutning lags Fjöldi áhorfenda púaði og baulaði á Silvíu Nótt áður en hún hóf að flytja lag Íslendinga í undankeppni Eurovision í Ólympíuhöllinni í Grikklandi í gærkvöldi, sem mun vera einsdæmi í sögu keppninnar. 19. maí 2006 13:45 Stíll Silvíu þriðji neðsti Búningur Silvíu Nætur í Eurovision lenti í þriðja sæti yfir þá verstu. Portúgölsku stúlkurnar í Nonstop sigruðu Barbara Dex verðlaunin, sem eru verðlaun aðdáenda keppninnar yfir versta klæðnaðinn á sviði keppninnar. Verðlaunin kallast Barbara Dex eftir belgíska kynnirnum árið 1993, en hún Barbara saumaði kjólinn sinn sjálf og þótti hann ekki til fyrirmyndar. 1. júní 2006 13:15 Grímuklæddir finnskir rokkarar unnu Evróvisjón Finnsku þungarokkararnir Lodi tóku Evróvision keppnina með áhlaupi í gærkvöldi. Mikill fögnuður var í Finnlandi, en þar í landi eru menn vanari því að fá ekkert stig heldur en tólf. 21. maí 2006 10:55 Silvía Nótt tekur upp plötu "Já, ég get staðfest það að Silvía Nótt er að taka upp plötu en ég get ekki sagt mikið meira en það," segir Gaukur Úlfarsson, umboðsmaður Silvíu Nætur. Lítið hefur heyrst frá Silvíu eftir að hún fór fyrir Íslands hönd í Eurovision á dögunum en eftir það skellti hún sér í frí á eyjunni Mýkonos. 7. júní 2006 11:30 Sylvía Nótt var prúðmennskan uppmáluð Sylvía Nótt er orðin prúð í fasi. Í fyrstu umferð Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi mætti hún í hvítum englakjól og ráðlagði væntanlegum sigurvegurum að sýna hógværð og vera með fæturna á jörðinni, því það væri miklu meira “kúl” en þau látalæti sem hún varð á sínum tíma fræg fyrir. 21. janúar 2007 12:53 Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira
Erkióvinir eigast við á sviði Keppnin um titilinn Fyndnasti maður Íslands stendur nú sem hæst. Á síðasta undanúrslitakvöldinu, sem fram fer í Austurbæ í kvöld, munu erkióvinirnir Eyvindur Karlsson og Egill „Gillzenegger“ Einarsson stíga á svið til að skemmta salnum. 22. mars 2007 10:00
„I'll be back“ Pistlaskrif mín á þessari leiðaraopnu byggjast á þeirri hugmynd að fátt skipti meira máli en stjórnmál. Er það starf mitt að velta upp og svara mikilvægum spurningum á borð við: Hvað er grænna en íslenskur torfbær? 17. október 2014 07:00
Silvía Nótt seld til Svíþjóðar Hópnum sem stendur að baki Silvíu Nótt hefur borist tilboð frá sænsku sjónvarpsstöðinni TV4 en hún er stærsta einkarekna sjónvarpsstöðin þar í landi. Gaukur Úlfarsson, leikstjóri þáttanna, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið og sagði þetta vissulega mikil gleðitíðindi. 17. maí 2007 10:15
Í hóp með Borat og Silvíu Nótt „Mikil endalaus andskotans ládeyða ríkir á öldum ljósvakans hér á landi. Er virkilega enginn sem leggur í þessar öldur? Fyrir utan gömlu og góðu Gufuna er fátt að hlusta á, nema ef til vill Útvarp Sögu.“ Svona hefst síðasta bloggfærsla hins geðstirða Georgs Bjarnfreðarson sem vaknar til lífsins á skjám landsmanna þegar sjónvarpsþátturinn Næturvaktin hefur göngu sína. 12. mars 2007 00:01
Nóg komið af öskrum Umræðan í íslenskri pólitík er eins og banvænt krabbamein í samfélaginu að mati Gauks Úlfarssonar, kvikmyndaleikstjóra og eins forsprakka Besta flokksins. Gaukur segir að pólitíkin sé of vond til að gott fólk hætti sér út í hana og Íslendingar séu enn jafn frekir og þeir voru fyrir hrun. 26. september 2011 10:15
Silvíu vantaði 14 stig upp á Silvía Nótt var þrettánda af 23 keppendum í undankeppni Eurovision á fimmtudagskvöldið. Pólverjar voru næstir því að komast inn með sjötíu stig og Belgar voru í tólfta sæti. 22. maí 2006 05:45
Tugmilljóna samningur Silvíu og Frímanns „Já, við erum að bjóða til veislu í hvalveiðiskipinu Eldingu í dag. Með kampavínsglas í annarri og hvalrengi í hinni,” segir Jakob Frímann Magnússon hljómplötuútgefeandi með meiru. Klukkan ellefu í dag siglir hvalveiðiskip úr Reykjavíkurhöfn með frítt föruneyti. 10. febrúar 2007 13:45
Einsdæmi að púað sé fyrir flutning lags Fjöldi áhorfenda púaði og baulaði á Silvíu Nótt áður en hún hóf að flytja lag Íslendinga í undankeppni Eurovision í Ólympíuhöllinni í Grikklandi í gærkvöldi, sem mun vera einsdæmi í sögu keppninnar. 19. maí 2006 13:45
Stíll Silvíu þriðji neðsti Búningur Silvíu Nætur í Eurovision lenti í þriðja sæti yfir þá verstu. Portúgölsku stúlkurnar í Nonstop sigruðu Barbara Dex verðlaunin, sem eru verðlaun aðdáenda keppninnar yfir versta klæðnaðinn á sviði keppninnar. Verðlaunin kallast Barbara Dex eftir belgíska kynnirnum árið 1993, en hún Barbara saumaði kjólinn sinn sjálf og þótti hann ekki til fyrirmyndar. 1. júní 2006 13:15
Grímuklæddir finnskir rokkarar unnu Evróvisjón Finnsku þungarokkararnir Lodi tóku Evróvision keppnina með áhlaupi í gærkvöldi. Mikill fögnuður var í Finnlandi, en þar í landi eru menn vanari því að fá ekkert stig heldur en tólf. 21. maí 2006 10:55
Silvía Nótt tekur upp plötu "Já, ég get staðfest það að Silvía Nótt er að taka upp plötu en ég get ekki sagt mikið meira en það," segir Gaukur Úlfarsson, umboðsmaður Silvíu Nætur. Lítið hefur heyrst frá Silvíu eftir að hún fór fyrir Íslands hönd í Eurovision á dögunum en eftir það skellti hún sér í frí á eyjunni Mýkonos. 7. júní 2006 11:30
Sylvía Nótt var prúðmennskan uppmáluð Sylvía Nótt er orðin prúð í fasi. Í fyrstu umferð Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi mætti hún í hvítum englakjól og ráðlagði væntanlegum sigurvegurum að sýna hógværð og vera með fæturna á jörðinni, því það væri miklu meira “kúl” en þau látalæti sem hún varð á sínum tíma fræg fyrir. 21. janúar 2007 12:53