Emil: Mætum auðmjúkir til leiks
„Ég fékk smá tak í bakið og ég orðinn klár. Stebbi sjúkraþjálfari hefur unnið að því síðustu daga að koma mér í stand og gat ég æft á fullu í morgun,“ sagði Emil en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
„Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem ég fæ eitthvað í bakið en væntanlega er þetta vegna uppsafnaðrar þreytu. En þetta er allt í góðu núna.“
Emil er spenntur fyrir leiknum á morgun og segist hafa verið búinn að bíða eftir honum undanfarinn mánuð. „Það verður gaman að fá að taka þátt í hálfgerðum úrslitaleik um toppsæti riðilsins á morgun.“
Hann segir að Tékkland sé með svipað lið og það íslenska - liðsheildin sé góð og menn duglegir. „Ég held því að þetta verði hörkuleikur á milli tveggja baráttuliða. Við höfum farið vel yfir okkar leikaðferðir og án þess að ég gefi mikið upp þá verður þetta örugglega svipað og í síðustu leikjum.“
„Við ætlum að taka vel á þeim og ef við erum klárir í þann slag þá getum við vel tekið þrjú stig heim til Íslands,“ segir Emil en skömmu fyrir viðtalið hafði hann veitt nokkrum tékkneskum knattspyrnuáhugamönnum eiginhandaáritun.
„Ég er ekki viss um að þeir vissu einu sinni hver ég væri. Þeir létu mig bara kvitta undir. Þetta er bara partur af þessu. Það eru allir með báða fætur á jörðinni sem skiptir öllu máli. Við mætum auðmjúkir til leiks og þá náum við úrslitum.“
Tengdar fréttir

Heimir: Mér flaug í hug að hætta við leikinn gegn Belgíu
Segir Tékkana njóta góðs af því að hafa æft saman í heila viku.

Fyrirliðinn ekki lengur flippaði gaurinn í landsliðinu
Aron Einar Gunnarsson hefur margsannað sig sem leiðtogi íslenska landsliðsins innan vallar sem utan. Hann segist stoltur af því að fá að kalla sig fyrirliða þessa hóps og vonar að uppgangurinn sé rétt að byrja.

Aron: Tilfinningin ekki önnur nú
Aron Einar Gunnarsson segir ekki auðvelt að ætla sér að sækja þrjú stig til Tékklands.

Ari Freyr: Google translate fór illa með Danina
Telur að staða vinstri bakvarðar henti sér best.

Allir tóku þátt á æfingunni í Plzen | Myndir
Myndasyrpa frá fyrstu æfingu íslenska landsliðsins í Tékklandi.

Kolbeinn sá bróður sinn skora gegn Tékkum
Andri Sigþórsson var á skotskónum í sigrinum fræga gegn Tékkum.

Emil og Sölvi hvíldu á æfingunni
Landsliðið tók rólega æfingu á Heysel-leikvanginum í Brussel í dag.

Elmar: Eigum að sækja til sigurs
Theódór Elmar Bjarnason segir Ísland mæta til leiks gegn Tékklandi með fullt sjálfstraust.

Jón Daði: Cech bara mannlegur eins og við hin
Sóknarmaðurinn segir að það yrði skemmtilegur bónus að skora fram hjá Petr Cech.

45 þúsund Tékkar óskuðu eftir miðum
Rúmlega 700 Íslendingar verða á Doosan Arena.

Kolbeinn: Framherjar verða að halda ró sinni þó illa gangi
Kolbeinn Sigþórsson lætur gagnrýnisraddir ekki setja sig úr jafnvægi. Á ýmsu hefur gengið hjá liði hans, Ajax í Hollandi, en hann segist ánægður þar þó að hann hafi verið hársbreidd frá því að yfirgefa félagið.

Emil tók því rólega á æfingu landsliðsins
Engin ný meiðsli eftir leikinn gegn Belgíu í gær.

Þjálfari Tékka verður á heimavelli á sunnudaginn
Pavel Vrba stýrði liði Viktoria Plzen í fimm ár og vann þrjá stóra titla.

Allir tóku þátt í æfingunni í dag
Emil Hallfreðsson orðinn leikfær fyrir leikinn gegn Tékklandi á sunnudag.

Rúrik: Verðum kreisí eins og alltaf
Segir að Ísland þurfi að standa vaktina vel í vörninni gegn sterku liði Tékklands.

Miklu betri þegar það telur
Íslenska knattspyrnulandsliðið hefur náð sínum besta árangri í keppnisleikjum frá upphafi eftir að Lars Lagerbäck tók við en gengið í vináttulandsleikjunum er ekki nærri því eins gott. Nýta vináttuleikina vel.

Aron Einar: Er með Víkingatattú því mér finnst það töff
Fyrirliðinn óttast ekki hvernig flúrin fara í ellinni.
Læknir landsliðsins segir sjúkraþjálfarana vinna kraftaverk
Gauti Laxdal segir að það sé í mörg horn að líta fyrir sjúkrateymi íslenska landsliðsins.

Ólafur Ingi veiktist í nótt
Er tæpur fyrir leikinn gegn Belgíu á morgun sem og Sölvi Geir Ottesen.

Heimir: Það vill enginn missa af leiknum gegn Tékkum
Heimir Hallgrímsson segir engan í íslenska liðinu geta verið öruggan með sæti sitt eftir frammistöðu "varamannanna“ í 3-1 tapinu fyrir Belgíu í fyrrakvöld.