Kóngarnir fyrstir til að fella Chicago á útivelli | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. nóvember 2014 07:00 DeMarcus Cousins héldu engin bönd í nótt. vísir/getty
Chicago Bulls tapaði fyrsta leiknum sínum á útivelli í nótt þegar liðið laut í gras gegn Sacramento Kings, 103-88, en Bulls vann fyrstu sex útileiki sína á leiktíðinni. Chicago vann fyrsta leikhlutann með sjö stigum, 29-22, en Kóngarnir voru fljótir að svara; unnu annan leikhlutann 30-18 og höfðu betur í hálfleik, 52-47. Sacramento lét forystuna aldrei af henti og innbyrti sjöunda sigur tímabilsins. DeMarcus Cousins heldur áfram að spila frábærleg fyrir Sacramento, en hann bauð upp á tröllatvennu í nótt og skoraði 22 stig og tók 14 fráköst. Rudy Gay spilaði einnig mjög vel og skoraði 17 stig og tók 7 fráköst. Pau Gasol er enn frá vegna meiðsla hjá Chicago líkt og Derrick Rose, en Jimmy Butler var stigahæstur gestanna með 23 stig. Joakim Noah varð undir í baráttunni gegn Cousins og skoraði 10 stig og tók 11 fráköst. Los Angeles Clippers átti svo ekki í miklum vandræðum með að vinna Miami Heat á útivelli í hinum leik næturinnar, en Los Angeles-liðið hafði betur, 110-93. Chris Paul og Blake Griffin skoruðu báðir 26 stig fyrir gestina, en Griffin bætti við 7 fráköstum og Paul 12 stoðsendingum. Chris Bosh var lang atkvæðamestur í liði Miami með 28 stig og 7 fráköst, en Dwayne Wade spilaði ekki leikinn.Úrslit næturinnar: Miami Heat - Los Angeles Clippers 93-110 Sacramento Kings - Chicago Bulls 88-193Staðan í deildinni.Stórleikur Chris Paul: Hlustaðu á Crish Bosh í leiknum gegn Clippers:
NBA Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Körfubolti „Get ekki beðið um mikið meira“ Fótbolti Fleiri fréttir „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Sjá meira