Körfubolti

Philadelphia á góðri leið með að bæta vafasamt met

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nerlens Noel og félagar í Philadelphia 76ers hafa tapað fyrstu 16 leikjum sínum á tímabilinu.
Nerlens Noel og félagar í Philadelphia 76ers hafa tapað fyrstu 16 leikjum sínum á tímabilinu. vísir/afp
Það gengur hvorki né rekur hjá Philadelphia 76ers í NBA-deildinni. Liðið lá fyrir Dallas Mavericks í nótt og hefur því tapað öllum 16 leikjum sínum tímabilinu.

Aðeins þrjú lið hafa byrjað verr í sögu NBA-deildarinnar. New Jersey Nets er handhafi þessa vafasama mets, en liðið tapaði fyrstu 18 leikjum sínum tímabilið 2009-2010.

Næst á listanum koma Los Angeles Clippers og Miami Heat. Clippers tapaði fyrstu 17 leikjunum verkfallstímabilið 1999 og Miami tapaði einnig 17 fyrstu leikjum sínum tímabilið 1988-89, sem var jafnframt fyrsta tímabil liðsins í NBA-deildinni.

Þessi lið hafa byrjað verst í sögu NBA- deildarinnar:

18 - New Jersey Nets, 2009-10

17 - LA Clippers - 1999

17 - Miami Heat - 1988-89

16 - Philadelphia 76ers - 2014-15

16 - LA Clippers - 1994-95

15 - Philadelphia 76ers - 1972-73

15 - Cleveland Cavaliers - 1970-71

15 - Denver Nuggets - 1949-50

13 - Phoenix Suns - 1996-97

13 - Memphis Grizzlies - 2002-03

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×