Veiði

Fyrsta Opna Hús vetrarins hjá SVFR

Karl Lúðvíksson skrifar
Nýja skemmtinefndin hjá SVFR
Nýja skemmtinefndin hjá SVFR
Næstkomandi föstudag mun ný skemmtinefnd þreyta frumraun sína og halda opið hús eins og venja er í desember til þess að koma veiðimönnum og konum í gegnum jólamánuðinn.

Dagskráin er ekki að verri endanum og er greinilegt að ný skemmtinefnd ætlar ekki að slá slöku við. Að venju opnar húsið klukkan 20:00 og verður að þessu sinni gleðin haldin í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal.

Dagskrá :

1. Árni Friðleifsson talar um lífið og tilveruna.

2. Einar Falur kynnir nýju Vatnsdalsár bókina.

3. Þröstur Elliđason heldur kynningu um Minnivallalæk.

4. 5 uppáhalds veiðistaðir.

5. Nils Fölmer Jörgensen kynnir "Catch That Salmon 2"

6. Stjáni Ben fjallar um saltvatnsveiðar í mexíkó.

7. Happahylurinn verður stútfullur að venju.

Vinningar í happdrætti:

Langá, 1 stöng 15/17 ágúst.

Laxárdalur, 2 stangir 15/17 ágúst.

Varmá, 6 stangir í einn dag í maí.

Minnivallalækur, 2 stangir í 2 daga

Veiðivörur úr Veiðiflugum að verðmæti 60.000 kr

Flugubox frá Kröflu að Verðmæti 20.000 kr

2 veiðikort

Og margt fleira...

Verðmæti Vinninga er yfir 500.000 kr!






×