Neil Young æfir á Íslandi Gunnar Leó Pálsson skrifar 11. mars 2014 09:30 Neil Young ætlar að nýta nýju Laugardalshöllina til æfinga fyrir tónleikaferðalagið. vísir/getty „
Hann ætlar að nota nýju Laugardalshöllina sem æfingahúsnæði fyrir tónleikaferðalagið sem hefst hér á landi 7. júlí næstkomandi,“ segir Tómas Young skipuleggjandi ATP hátíðarinnar. Tónlistarmaðurinn Neil Young kemur hingað til lands viku fyrir tónleika sína sem fram fara 7. júlí og ætlar hann að nýta nýju Laugardalshöllina sem æfingahúsnæði fyrir tónleikaferðalagið sem hefst hér á landi. „Hann kemur til Íslands líklega 2. eða 3. júlí, þá verður nýja Laugardalshöllin tilbúin til tónleikahalds og verður því nýtt til æfinga.“ Ekki er vitað hvort Neil Young ætlar að skoða landið frekar þennan tíma sem hann dvelur hér á landi. „Það er óvíst hvað hann gerir en hann mun allavega eyða megninu af tímanum á æfingum í höllinni.“ Young kemur fram ásamt hljómsveit sinni Crazy Horse og má því búast við mikilli stemningu. „Hann mun klárlega fara yfir sín þekktustu lög en það er aldrei að vita nema eitthvað nýtt heyrist í Höllinni,“ segir Tómas um tónleikana. Tónleikar Neils Young eru hluti af ATP-tónlistarhátíðinni sem fram fer helgina eftir tónleika Youngs, 10. til 12. júlí á Ásbrú í Keflavík. Stórhljómsveitirnar Portishead og Interpol eru á meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á hátíðinni en þó á enn eftir að bæta við bæði innlendum og erlendum listamönnum á ATP-hátíðina.
ATP í Keflavík Tónlist Mest lesið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira