Man óljóst eftir fyrsta landsleiknum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 8. júlí 2014 06:00 Hildur setur landsleikjamet á næstunni. fréttablaðið/valli
Hildur Sigurðardóttir mun að öllu óbreyttu slá landsleikjametið hjá A-landsliði kvenna í Evrópukeppni smáþjóða sem fram fer í Austurríki.Birna Valgarðsdóttir á metið en það er 76 leikir og var sett árið 2009. Hildur er búin að spila 73 leiki. Ísland mun spila tvo vináttulandsleiki gegn Dönum á morgun og fimmtudag. Svo er það EM smáþjóða þann 14. júlí og þá slær Hildur væntanlega metið í leik gegn Möltu. „Ég er ekki mikið að hugsa um metið en þetta hefur verið langur og skemmtilegur tími með landsliðinu,“ segir hin 32 ára gamla Hildur. „Ég man óljóst eftir fyrsta landsleiknum en ég er frekar fljót að gleyma. Leikurinn var samt úti í Lúxemborg árið 1999. Það eru komin nokkur ár síðan og vonandi eru nokkur eftir. Á meðan skrokkurinn er í lagi og ég hef gaman af þessu þá held ég áfram. Þetta er stuttur kafli í lífi manns og um að gera að njóta þess á meðan er.“ Stelpurnar fá fínan undirbúning fyrir EM í Austurríki með leikjunum gegn Dönum en þetta verða fyrstu landsleikir kvennaliðsins á heimavelli í fimm ár. Á morgun spila þjóðirnar á Ásvöllum í Hafnarfirði og á fimmtudag mætast þau í Fjarhúsinu í Stykkishólmi.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira