Eftir því sem dagarnir verða styttri og kaldari verður húðin viðkvæmari, fölari og þurrari. Á þessum árstíma er nauðsynlegt að endurskoða umhirðu húðarinnar og skipta um snyrtivörur í skápnum. Hérna koma nokkur góð ráð til þess að halda húðinni í góðu jafnvægi á næstkomandi mánuðum.
Mildur hreinsir
Það misjafnt hvaða vörur einstaklingar nota til þess að hreinsa húðina, en þar sem hún verður viðkvæmari í kulda er heillaráð að fá sér kremkenndan og rakagefandi hreinsi.
Skrúbbaðu
Þegar kólnar úti hægir örlítið á líkamsstarfsemi og húðin verður ekki eins dugleg að endurnýja sig sem gæti leitt til þess að dauðar húðfrumur hangi lengur á húðinni en óskað er. Gott ráð við þessu er að nota mildan skrúbb tvisvar í viku eða mildan húðhreinsibursta á hverju kvöldi. Þegar dauðar húðfrumur eru fjarlægðar eiga næringarefnin í kremunum greiðari leið inn í húðina.
Kremaðu þig upp
Ekki er mælt með því að nota sama kremið allt árið um kring. Húðin verður töluvert þurrari yfir vetratímann hérna á okkar ylhýra Íslandi. Veldu feitari og rakameiri krem á veturna. Til dæmis er ekki verra ef kremið inniheldur hyaluoronic-sýru en hún bindur vatn og raka í húðinni.
Sólarvörn
Þó svo að sólin sé fáséð yfir vetrartímann þá er þó gott að hafa í huga að nota sólarvörn þegar hún loksins lætur á sér kræla. Allrabest er að nota rakakrem sem inniheldur sólarvörn. Þeir sem að stunda skíði af kappi ættu sérstaklega að hafa þetta í huga.
Næturvinna
Húðin þarf sérstaklega mikla umhyggju yfir vetrartímann og þá er gott að vera með góð næturkrem. Ekki er verra ef þau innihalda retinol, en það eykur framleiðslu á kollageni og elastíni sem eru byggingarefni húðarinnar og auka teygjanleikann. Til eru margar tegundir af rakamaska sem má sofa með og næra húðina yfir nótt.
