1. Ekki hanga í líkamsræktarfötunum að lokinni æfingu.
Líkaminn heldur áfram að svitna og því fyrr sem þú ferð úr fötunum, sturtar þig og ferð í önnur föt, því minni verður svitinn og bleytan í fötunum og þau geta þornað án þess að fá aukasvita í sig.
2. Hengdu upp fötin á meðan þú ferð í sturtu.
Þetta kann að vera stuttur tími en gefur þeim þó smá stund til að þorna áður en flíkunum er vöðlað saman ofan í tösku
3. Ef fötin eru mjög blaut, þerraðu af þeim í handklæði.
Ef þú færð aukahandklæði í ræktinni þá getur þú lagt fötin inn í handklæðið og rúllaði þeim þéttingsfast til að ná út sem mestu raka
4. Settu sveitt fötin í pappírspoka frekar en plastpoka
Plastið myndar gróðrastíu fyrir bakteríur svo að ef þau rata ekki fljótlega í þvottavélina, settu þau í pappírspoka
5. Ef tíminn er af skornum skammti, skolaðu flíkurnar
Ef þú veist að þú munt ekki ná að þvo þau í þvottavél getur verið gott að skola bara af þeim og hengja til þerris fyrir næstu æfingu

- Ef það er fylling í æfingartoppnum, taktu það út áður en þværð, sérstaklega ef ætlar að setja toppinn í þurrkarann
- Reyndu að þvo æfingarfötin með fötum úr líku efni og á röngunni svo ekki dragist til í þeim eða þau festist í rennilásum
- Þvoðu uppúr köldu vatni, á 30 gráðum
- Ekki nota mýkingarefni, það rýrir efnið og það getur misst eiginleika sína til að draga í sig raka
- Ef það er fastur fnykur í fötunum þá getur verið gott að setja smá edik í hólf þvottavélarinnar þegar hún fer að skola fötin
- Hengdu fötin til þerris frekar en að skella þeim í þurrkarann, þá endast þau betur og lengur
Athugaðu þó að þessar leiðbeiningar eru almennar, það er alltaf best að fara eftir þvottaleiðbeiningum flíkanna.
Til að þrífa æfingartösku sem ekki má fara í þvottavélina getur verið gott að blanda helming af ediki á móti vatni og spreyja í töskuna og strjúka að innan. Einnig getur verið gott að sáldra smá matarsóda í töskuna og þurrka svo úr.