The Charlies hætt Kolbeinn Tumi Daðason og Stefán Árni Pálsson skrifa 17. janúar 2015 11:43 Alma Guðmundsdóttir, Klara Ósk Elíasdóttir og Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir. vísir/daníel
Stúlknabandið The Charlies er hætt en frá þessu er greint í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þær Alma Guðmundsdóttir, Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir og Klara Ósk Elíasdóttir ætla samt sem áður að búa áfram Í Los Angeles og reyna fyrir sér í skemmtanabransanum. Þær stöllur hafa búið í borginni í fimm ár og myndað bandið The Charlies. Áður hét bandið Nylon en auk hinna fyrrnefndu þriggja var Emilía Óskarsdóttir einnig í hljómsveitinni. „Það er töluvert síðan við áttuðum okkur á því að hæfileikar okkar liggja á ólíkum sviðum, þó að þeir skarist líka. Allt þetta margra ára ferli hefur skerpt á því,“ segir Steinunn Camilla í samtali við Morgunblaðið.Sjá einnig:The Charlies í heilsuþætti rokkstjarna Þær Alma og Klara ætla að halda áfram á tónlistarsviðinu en Steinunn ætlar hefur áhuga á að koma íslenskri tónlist á framfæri ytra. Ætlar hún að stofna fyrirtæki í þeim tilgangi ásamt Soffíu Kristínu Jónsdóttur. „Fyrirtækið mun heita Iceland Sync og mun meðal annars sérhæfa sig í að koma íslensku efni til Bandaríkjanna. Við erum þegar byrjaðar að vinna með nokkrum listamönnum, en það þarf varla að taka það fram að ég mun að sjálfsögðu vilja vinna með Ölmu og Klöru í að koma þeirra efni á framfæri,“ segir Steinunn. Uppruna hljómsveitarinnar má rekja til ársins 2004 þegar Alma, Klara og Steinunn voru hlutskarpastar í áheyrnarprufum sem umboðsmaðurinn Einar Bárðarson stóð fyrir. Skömmu síðar var Emilíu boðið að vera með í sveitinni og eftir að hafa hitt stúlkurnar ákvað hún að slá til. Hljómsveitin naut nokkurra vinsælda hér heima með endurútgáfu á laginu „Lög unga fólksins“ auk laganna „Fimm á Richter“ og „Bara í nótt“. Árið 2006 náði hljómsveitin vinsældum erlendir þegar lagið „Losing a Friend“ var gefið út í Englandi. Lagið náði í 29. sæti vinsældalista í Bretlandi og fór Nylon meðal annars á tónleikaferðalag með hljómsveitunum Westlife og Girls Aloud. Sumarið 2007 ákvað Emilía að segja skilið við sveitina en stelpurnar þrjár létu ekki deigan síga. Þær gáfu út plötu með bestu lögum sveitarinnar árið 2007 og héldu áfram að spila utan landsteinanna. Árið 2008 sneru stelpurnar svo heim. Árið 2010 var The Charlies svo formlega stofnuð og héldu stúlkurnar til Los Angeles þar sem þær hafa verið síðan eða í tæp fimm ár. Stofnuðu þær Facebook-síðu af því tilefni. Post by The Charlies. Nú hafa þær hins vegar farið sínar eigin leiðir en eru þó áfram miklar vinkonur. Gildir það einnig um Emilíu sem hefur alltaf verið í góðu sambandi við hinar þrjár.
Tengdar fréttir Viljum enga stráka í hljómsveitina Stúlknasveitin The Tension frá Selfossi er andstæðan við The Charlies og spilar rokk. Þær leita að stelpubassaleikara enda vilja þær alls enga stráka í hljómsveitina. 22. nóvember 2013 09:00 The Charlies hvergi nærri hætt „Nei, það var verið að spyrja mig að því nýlega. Við erum enn þá hérna saman úti,“ segir Alma Goodman. 18. júlí 2014 11:30 The Charlies í heilsuþætti rokkstjarna Íslenska kvennahljómsveitin Charlies eru gestir í heilsuþætti rokkstjarnanna, Rockstar Health & Fitness, hjá Lori Rischer. Þar ræða þær heilsuna og taka nokkrar æfingar, tala um Ísland, Lýsið og gera "plankann" meðal annars þegar kemur að æfingunum í þættinum. Heimasíða hennar Lori. 7. febrúar 2013 10:05 Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Sjá meira
Viljum enga stráka í hljómsveitina Stúlknasveitin The Tension frá Selfossi er andstæðan við The Charlies og spilar rokk. Þær leita að stelpubassaleikara enda vilja þær alls enga stráka í hljómsveitina. 22. nóvember 2013 09:00
The Charlies hvergi nærri hætt „Nei, það var verið að spyrja mig að því nýlega. Við erum enn þá hérna saman úti,“ segir Alma Goodman. 18. júlí 2014 11:30
The Charlies í heilsuþætti rokkstjarna Íslenska kvennahljómsveitin Charlies eru gestir í heilsuþætti rokkstjarnanna, Rockstar Health & Fitness, hjá Lori Rischer. Þar ræða þær heilsuna og taka nokkrar æfingar, tala um Ísland, Lýsið og gera "plankann" meðal annars þegar kemur að æfingunum í þættinum. Heimasíða hennar Lori. 7. febrúar 2013 10:05