Hvernig getur þessi ekki verið Stjörnuleikmaður í NBA? | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2015 23:00 Damian Lillard. Vísir/EPA
Damian Lillard, bakvörður Portland Trail Blazers, mætti reiður til leiks í nótt og átti eina svakalega troðslu yfir einn af risunum í NBA-deildinni í körfubolta. Utah Jazz miðherjinn Rudy Gobert er 218 sentímetrar á hæð og það eru fáir sem reyna að troða boltanum þegar hann stendur fyrir framan körfuna. Damian Lillard, sem er 191 sentímetrar á hæð, var þó ekkert að hika og tróð boltanum yfir Gobert sem gat lítið gert þrátt fyrir að vera 27 sentímetrum hærri en bakvörðurinn snjalli. Lillard sem hefur verið frábær með liði Portland Trail Blazers í vetur, var af einhverjum ástæðum ekki valinn í Stjörnuleik NBA-deildarinnar og kannski var þessi troðsla smá skilaboð til þeirra sem álíta sem svo að hann ekki eiga sætið skilið. Damian Lillard var með 25 stig og 6 stoðsendingar í eins stigs sigri Portland Trail Blazers á Utah Jazz. Það má sjá troðslu hans hér fyrir neðan. Lillard, sem er á sínu þriðja tímabili í deildinni, hefur hækkað meðalskor sitt öll tímabilin en hann er með 21,7 stig og 6,3 stoðsendingar að meðaltali í vetur. Charles Barkley var ekki sáttur með það að Damian Lillard var ekki valinn í Stjörnuleik NBA-deildarinnar eins og sjá má hér fyrir neðan.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira