Helgi Rafn: Ekkert samræmi í þessu Ingvi Þór Sæmundsson í DHL-höllinni skrifar 2. febrúar 2015 22:30 Darrell Lewis spilaði vel í kvöld. vísir/andri marinó
Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði Tindastóls, sagði erfitt að kyngja tapinu fyrir KR í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld. "Það er strembið. Það var mjög undarlegt að tapa þessum leik því við áttum alveg séns á að taka hann," sagði Helgi en Stólarnir voru að elta KR allan leikinn og komust aldrei yfir þrátt fyrir fínan leik á köflum. "Það hafði mikið að segja, í stöðunni 55-52 þegar við vorum á blússandi siglingu, að þá var leikurinn stöðvaður í 5-10 mínútur til að skoða einhvern þrist. "Af hverju var það ekki skoðað þegar þeir voru stígandi út af undir körfunni? Það var ekkert samræmi í þessu," sagði Helgi en var hann ósáttur með dómgæsluna í kvöld? "Þeir fengu að keyra mikið inn í vörnina og sóttu mikið af villum en ég ætla að kenna dómurunum um tapið. Þeir flautuðu okkur ekkert út úr leiknum. "Við fengum þessar villur og spiluðum fast eins og við viljum gera," sagði Helgi sem segir bilið á milli Tindastóls og KR ekki vera mikið. "Við erum ekkert langt frá þeim og núna er fjörið bara að byrja. Það var leiðinlegt að missa af þessum titli en það er einn stór eftir," sagði Helgi en ætla Stólarnir sér að vinna sjálfan Íslandsmeistaratitilinn? "Við gerum allavega góða tilraun til þess og sýnum í hvað okkur býr."
Dominos-deild karla Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Fótbolti Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira