Stjörnumenn í Höllina í þriðja sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2015 21:06 Justin Shouse. Vísir/Ernir
Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitaleik Poweradebikar karla í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Skallagrími, 102-97, í undanúrslitaleik liðanna í Fjósinu í Borgarnesi í kvöld. Stjörnuliðið hefur farið tvisvar í Höllina, 2009 og 2013, og unnið bikarinn í bæði skiptið. Stjarnan mætir annaðhvort KR eða Tindastóli í bikarúrslitaleiknum en seinni undanúrslitaleiknum í DHL-höllinni á morgun. Bakvarðarparið Justin Shouse og Dagur Kár Jónsson áttu enn einn góða leikinn með Stjörnuliðinu. Justin var með 31 stig og 5 stoðsendingar og Dagur Kár skoraði 24 stig. Sigtryggur Arnar Björnsson átti góðan leik með Skallagrími (26 stig og 6 stoðsendingar) en Tracy Smith var stigahæstur með 29 stig. Páll Axel Vilbergsson skoraði 18 stig en Magnús Þór Gunnarsson var með aðeins með 3 stig á 36 mínútum. Stjörnuliðið var 25-20 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með fimm stiga forskot í hálfleik, 49-44. Stjarnan skoraði síðan sjö fyrstu stigin í seinni hálfleik og eftir það var á brattann að sækja hjá heimamönnum. Skallagrímsmenn gáfust ekki upp, héngu í Garðabæjarliðinu en náðu aldrei að vinna muninn alveg upp þrátt fyrir mikla baráttu. Spennan hélst þó allt til loka og Páll Axel Vilbergsson minnkaði muninn í þrjú stig, 100-97, þremur sekúndum fyrir leikslok. Justin Shouse setti þá niður tvö víti og kláraði leikinn.
Dominos-deild karla Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Fótbolti Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira