Handbolti

Auðvelt hjá Fylki gegn botnliðinu | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fylkiskonur fagna í kvöld.
Fylkiskonur fagna í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Fylkir vann í kvöld sannfærandi þrettán marka sigur á botnliði ÍR, 34-21, í Olísdeild kvenna í kvöld.

Staðan í hálfleik var 17-8, Fylkiskonum í vil, og sigurinn því aldrei í hættu. Patricia Szölösi skoraði átta mörk fyrir Árbæinga í kvöld en Karen Tinna Demian var langmarkahæst ÍR-inga með tólf mörk.

Fylkir komst upp í sjötta sæti deildarinnar með sigrinum í kvöld og upp fyrir Val. Fylkir er með sautján stig en ÍR á botninum með eitt.

Fylkir - ÍR 34-21 (17-8)

Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 8, Thea Imani Sturludóttir 7, Kristjana Björk Steinarsdóttir 6, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 3, Vera Pálsdóttir 3, Sigrún Birna Arnardóttir 3, Hildur Björnsdóttir 1, Hafdís Shizuka Iura 1, Diljá Mjöll Aronsdóttir 1, Rebekka Friðriksdóttir 1.

Mörk ÍR: Karen Tinna Demian 12, Sif Maríudóttir 3, Auður Margrét Pálsdóttir 2, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 2, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 1, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 1.

Vísir/Andri Marinó



Fleiri fréttir

Sjá meira


×