Chicago slökkti í Cleveland fyrir stjörnuleiksfríið | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. febrúar 2015 07:30 Pau Gasol og Joakim Noah eru rosalegir undir körfunni. vísir/epa
Chicago Bulls vann Cleveland Cavaliers örugglega á heimavelli í NBA-deildinni í körfubolta í nót, 113-98, en leikurinn var sá síðasti fyrir stjörnuleiksfríið, en stjörnuleikurinn fer fram á sunnudaginn. Cleveland var búið að vinna 15 af 16 síðustu leikjum sínum fyrir tapið í nótt, en Chicago er nú búið að vinna fjóra í röð eftir að tapa 10 af 15 þar á undan. Bæði lið verið á miklum skriði að undanförnu. Derrick Rose var í miklum ham fyrir Chicago og skoraði 30 stig og gaf 7 stoðsendingar, en þessi magnaði leikstjórnandi er að komast í sitt besta form eftir langvarandi meiðsli. Spánverjinn Pau Gasol getur ekki hætt að ná tvennum, en hann skoraði 18 stig og tók 10 fráköst í nótt fyrir heimamenn. Þetta er 14. leikurinn í röð þar sem hann nær tvennu. LeBron James reyndi hvað hann gat fyrir Cleveland og skoraði 31 stig, en gestirnir voru án Kevins Love sem var frá vegna augnvandamála. Kyrie Irving skoraði 17 stig. Chicago er í þriðja sæti austurdeildarinnar með 34 sigra og 20 töp, en Cleveland er í fimmta sætinu með 33 sigra og 22 töp, einum og hálfum leik á eftir Chicago. Hér að neðan má sjá skemmtileg myndbönd úr leiknum í nótt.LeBron skorar 31 stig: 30 stiga frammistaða Rose: 14 tvennur í röð hjá Gasol: Troðslur og læti í nótt: Timofey Mozgov treður yfir Joakim Noah:
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira