DV greindi fyrr í dag frá ákvörðun Stop Wait Go-lagahópsins um að sleppa dönsurum. Ákvörðunin var tilkynnt dönsurunum tveimur, þeim Ellen Margréti Bæhrenz og Þóreyju Birgisdóttur, á fundi í vikunni.
„Þetta kemur sér virkilega illa fyrir okkur því við höfum þurft að hafna verkefnum og höfum bara verið að einbeita okkur að atriðinu og dansinum fyrir aðalkeppnina í Vín,“ segir Þórey í samtali við miðilinn. Þá segir hún fjölskyldur þeirra beggja þegar hafa keypt flugmiða út til Austurríkis.
Sjá einnig: Verzló góður undirbúningur
Í viðtali við RÚV í kvöld segir svo Pálmi Ragnar Ásgeirsson, meðlimur Stop Wait Go, að hópurinn sé allur af vilja gerður til að koma til móts við fjölskyldurnar. Aðeins sex megi vera á sviðinu í keppninni en ekki liggi fyrir að svo stöddu hvort tveimur eða þremur söngvurum verði bætt við atriðið til viðbótar við þá þrjá sem fyrir eru. Þegar hefur verið greint frá því að einn þessara söngvara verður Friðrik Dór Jónsson, sem keppti við Maríu í úrslitum forkeppninnar.
„Það er virkilega erfitt að láta söng hljóma vel í beinni útsendingu í sjónvarpi - það er sama hvort það sé frá Super Bowl eða Söngvakeppninni - og við viljum gera allt til að styrkja sönginn,“ segir Pálmi við RÚV.