Ryanair ætlar að bjóða 15 dollara fargjald yfir Atlantshafið Finnur Thorlacius skrifar 19. mars 2015 09:34 Flugvél frá Ryanair.
Yfirstjórn írska flugfélagsins Ryanair hefur samþykkt áætlun sem felur í sér að bjóða flugfarþegum svo lágt verð sem 15 dollara í flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna. Það verður þó ekki í boði alveg á næstunni en áætlanir félagsins kveða á um að þetta verði gerlegt eftir um 5 ár. Borgirnar sem stefnt er á að fljúga frá í Evrópu eru Dublin, Köln, Berlín og borgir í Skandinavíu, Spáni og Ítalíu. Borgirnar vestanhafs yrðu Boston, Chicago, Miami, New York og Washington og fleiri því í áætlunum Ryanair er stefnan að tengja saman 12-14 borgir í Evrópu og annan eins fjölda í Bandaríkjunum. Vandi Ryanair að hrynda þessari áætlun strax í framkvæmd er bundin við skort á flugvélum. Rekstur Ryanair hefur gengið vel undanfarin ár og flugfélagið flutti 87 milljón farþega á síðasta ári og hagnaður var af rekstri félagsins. Ef af þessum áætlunum Ryanair verður er þar komin mikil samkeppni við íslensku flugfélögin Icelandair og Wow sem hafa uppi áætlanir um vaxandi flug á milli álfanna.
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Ellefu fyrirtæki til skoðunar vegna bílastæðagjalda Neytendur Fyrsta flýtiverkið boðið út og skal lokið á fimm mánuðum Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira