Þrenna Westbrook dugði ekki til | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2015 10:56 Fyrrum liðsfélagarnir, Harden og Westbrook, fóru báðir á kostum í gærkvöldi. vísir/afp
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. James Harden og Russell Westbrook voru í aðalhlutverkum í leik Oklahoma City Thunder og Houston Rockets, þar sem gestirnir höfðu að lokum betur, 112-115, eftir hörkuleik. Harden skoraði 41 stig fyrir Houston, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar. Westbrook bauð hins vegar upp á enn eina þrennuna í vetur, en hann skoraði 40 stig, tók 11 fráköst og gaf 13 stoðsendingar. Enes Kanter átti einnig góðan leik fyrir OKC með 21 stig og 17 fráköst. Meistarar San Antonio Spurs fóru illa með Golden State Warriors, topplið Vesturdeildarinnar, á heimavelli. Lokatölur 107-92, Spurs í vil en þetta var 17. sigur liðsins í síðustu 20 leikjum. Kawhi Leonard fór á kostum í liði Spurs en hann skoraði 26 stig, tók fimm fráköst, gaf þrjár stoðsendingar og stal boltanum sjö sinnum. Stephen Curry var stigahæstur í liði Golden State með 24 stig. Þá sneri Paul George aftur á völlinn þegar Indiana Pacers vann 23 stiga sigur á Miami Heat á heimavelli, 112-89. George, sem fótbrotnaði illa í æfingaleik með bandaríska landsliðinu síðasta sumar, spilaði í 15 mínútur og skoraði 13 stig. Argentínumaðurinn Luis Scola var stigahæstur í liði Indiana með 23 stig en hann tók auk þess 12 fráköst.Úrslitin í nótt: Oklahoma 112-115 Houston Cleveland 99-94 Chicago Indiana 112-89 Miami San Antonio 107-92 Golden State NY Knicks 101-91 Philadelphia Sacramento 95-101 Utah LA Lakers 78-106 LA Clippers
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira