Harden hefur leikið á alls oddi í vetur. Þetta var 33. leikurinn sem hann skorar yfir 30 stig í vetur og í níu þessara skipta hefur hann farið yfir 40 stigin. Þvílíkur vetur hjá piltinum.
DeMarcus Cousins var með ansi myndarlega þrennu fyrir Houston, en hann skoraði 24 sstig, tók 21 frákast og gaf tíu stoðsendingar. Houston er tryggt í úrslitakeppnina, en þetta var þriðji tapleikur Sacramento í röð.
Chris Paul var frábær í LA Clippers þegar liðið lagði Portland af velli í miklum stigaleik í nótt. Lokatölur urðu 162-112, Clippers í vil, en Paul skoraði 41 stig og gaf 17 stoðsendingar. LaMarcus Aldridge gerði 29 fyrir Portland. Bæði lið eru komin í úrslitakeppnina.
Meistararnir frá því í fyrra, San Antonio Spurs, eru á frábæru skriði þessa daganna. Í nótt unnu þeir sinn fimmta leik, en þá vann liðið tólf stiga sigur á Orlando, 103-91. Aron Baynes var stigahæstur hjá San Antonio með átján stig, en um svokallaðan liðsheildarisgur var að ræða. Victor Oladipo gerði 24 fyrir Orlando.
Öll úrslit næturinnar:
Charlotte - Detroit 102-78
Washington - Philadelphia 106-93
Oklahoma City - Dallas 131-135
Boston - Indiana 100-87
LA Lakers - New Orleans 92-113
Houston - Sacramento 115-111
Milwaukee - Chicago 95-91
New York - Brooklyn 98-100
Minnesota - Toronto 99-113
Utah - Denver 98-84
Orlando - San Antonio 91-103
Portland - LA Clippers 122-126