Njarðvíkingar í nákvæmlega sömu stöðu og í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2015 14:30 Logi Gunnarsson. Vísir/Stefán
Njarðvíkingar sækja heima Íslands- og deildarmeistara KR taka í kvöld í fimmta leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta en í boði er sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Njarðvíkingar jöfnuðu einvígið með frábærum sextán stiga sigri í síðasta leik liðanna í Ljónagryfjunni en þurfa að gera það, sem þeim hefur ekki tekist í úrslitakeppninni í ár, ætli þeir að komast í lokaúrslitin. Njarðvíkurliðið hefur nefnilega tapað öllum fjórum útileikjum sínum til þessa í úrslitakeppninni þar af leikjunum tveimur í DHL-höllinni með samtals 25 stigum (79-62 og 83-75). Njarðvíkingar búa hinsvegar að reynslu síðasta tímabils þegar þeir voru í nákvæmlega sömu stöðu og í kvöld eða í oddaleik í undanúrslitum á útivelli á móti ríkjandi Íslandsmeisturum. Njarðvíkurliðið tapaði þá 120-95 á móti Grindavík í Röstinni í Grindavík eftir að hafa tapað fyrsta leikhlutanum 38-19. Sjö leikmenn Njarðvíkurliðsins í dag tóku þátt í leiknum fyrir ári síðan en það eru þeir Ragnar Helgi Friðriksson, Ágúst Orrason, Ólafur Helgi Jónsson, Magnús Már Traustason, Maciej Stanislav Baginski, Logi Gunnarsson og Hjörtur Hrafn Einarsson. Logi skoraði 23 stig í leiknum og hitti meðal annars úr 5 af 7 þriggja stiga körfum sínum en stigahæstur var Elvar Már Friðriksson með 26 stig. Elvar Már stundar nám við LIU-háskóla í Brooklyn í vetur. Leikur KR og Njarðvíkur hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira