
Lið Ívars hafa lent 2-0 undir í fjórum einvígum í röð

Haukaliðin hafa nefnilega lent 2-0 undir í fjórum síðustu einvígum sínum í úrslitakeppni og í dag eru bæði karla- og kvennalið félagsins í slæmri stöðu í undanúrslitaeinvígum sínum enda 2-0 undir.
Karlalið Hauka tapaði 3-0 á móti Njarðvík í átta liða úrslitunum í fyrra en Ívar þjálfaði ekki kvennaliðið þann vetur. Stelpurnar lendu 2-0 undir í úrslitaeinvígi sínum á móti Snæfelli og töpuðu því einvígi 3-0.
Ívar tók við kvennaliðinu fyrir núverandi tímabil og stelpurnar eru núna 2-0 undir á móti Keflavík í undanúrslitum Dominos-deild kvenna.
Karlaliðið kom til baka í átta liða úrslitunum á móti Keflavík og komst áfram með því að vinna þrjá síðustu leiki sína.
Nú er að sjá hvort Ívari og liðum hans takist að framkalla fleiri kraftaverkaendakomur en bæði lið þurfa að vinna þrjá leiki í röð ef þau ætla ekki í sumarfrí.
Karlarnir byrja en þeir mæta Tindastól í Síkini á Sauðárkróki í kvöld í beinni á Stöð 2 Sport. Stelpurnar spila síðan fyrir tímabili sínum í Keflavík á morgun.
Tengdar fréttir

Tók stuðningsmannasveit Stólanna Francis úr sambandi?
Haukar eru komnir 2-0 undir í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Tindastól í Dominos-deild karla í körfubolta og flestir eru sammála því að slök frammistaða Bandaríkjamannsins Alex Francis á mikinn þátt í að fyrstu tveir leikirnir hafa ekki verið eins og létt æfing fyrir Stólanna.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Tindastóll 74-86 | Stólarnir með annan stórsigur
Tindastóll er kominn í kjörstöðu í undanúrslitaeinvígi sínu í Dominos-deild karla gegn Haukum eftir annan stórsigur á Hafnfirðingum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Tindastóll - Haukar 94-64 | Haukar sukku í Síkinu
Tindastóll byrjaði undanúrslitin í Dominos-deild karla með látum í kvöld er liðið vann afar sannfærandi sigur á Haukum í Síkinu.

Búinn að klikka á fleiri vítum en öll hin liðin í úrslitakeppninni
Alex Francis, bandaríski miðherjinn í liði Hauka, var slakur á vítalínunni í deildarkeppninni en hann hefur verið miklu verri í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfubolta.

Hvergi eins flott umgjörð á landinu og hérna
Helgi Freyr Margeirsson er einn af reynsluköppunum í liði Tindastóls og hann vill nýta tækifærið og fara alla leið með Stólunum í ár.

Sigur Stólanna á Haukum sá stærsti í níu ár
Fara þarf aftur til ársins 2006 til að finna stærri sigur í fyrsta leik í undanúrslitum úrvalsdeildar karla.