Öflugur sigur Clippers | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. apríl 2015 10:54 Blake Griffin og Zach Randolph voru öflugir í nótt. vísir/afp
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Clippers vann öflugan átta stiga sigur á Memphis Grizzlies á heimavelli, 94-86. Stigaskorunin dreifðist vel hjá Clippers en sex leikmenn liðsins skoruðu níu stig eða fleiri. Blake Griffin og J.J. Redick voru stigahæstir þeirra með 18 stig hvor. Chris Paul átti einnig stórleik með 15 stig og 14 stoðsendingar og þá skoraði DeAndre Jordan 16 stig og tók 16 fráköst. Zach Randolph var atkvæðamestur í liði Memphis með 21 stig og 13 fráköst. Memphis lék án bæði Mike Conley og Tony Allen sem eru meiddir. Golden State Warriors komst aftur á sigurbraut þegar liðið lagði Minnesota Timberwolves að velli, 110-101. Stephen Curry skoraði 34 stig fyrir Golden State sem er þegar búið að tryggja sér efsta sætið í Vesturdeildinni. Klay Thompson kom næstur með 23 stig. Derrick Rose átti góðan leik þegar Chicago Bulls vann Philadelphia 76ers á heimavelli, 114-107. Rose, sem sneri nýverið aftur á völlinn eftir erfið meiðsli, skoraði 22 stig, tók sex fráköst og gaf átta stoðsendingar. Pau Gasol var stigahæstur hjá Chicago með 24 stig, auk þess sem hann tók 13 fráköst.Úrslitin í nótt: Orlando 79-80 NY Knicks Toronto 107-104 Miami Philadelphia 107-114 Chicago Memphis 86-94 LA Clippers Utah 111-105 Portland Minnesota 101-110 Golden State
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira