Lykilmenn Tindastóls spiluðu 40 mínútur í úrslitaleik í unglingaflokki í gær

Tindastóll lék til úrslita í unglingaflokki karla þar sem Stólarnir mættu FSu og höfðu betur, 74-71.
Nokkrir af leikmönnum meistaraflokks Tindastóls eru einnig gjaldgengir í unglingaflokk. Þeirra á meðal eru Ingvi Rafn Ingvarsson, Pétur Rúnar Birgisson og Viðar Ágústsson sem eru allir í stórum hlutverkum í meistaraflokksliði Tindastóls sem sækir KR heim í þriðja leiknum í lokaúrslitum Domino's deildarinnar í kvöld.
Þjálfari unglingaflokks Tindastóls er Israel Martin, sem stýrir einnig meistaraflokki félagsins. Þrátt fyrir að aðeins um sólarhringur væri í þriðja leikinn gegn KR var Martin óhræddur að nota þremenninga í úrslitaleiknum í gær.
Pétur og Viðar spiluðu báðir allar 40 mínúturnar í úrslitaleiknum og Ingvi spilaði litlu minna, eða 37 mínútur.
Ingvi skoraði 20 stig í úrslitaleiknum og tók sex fráköst. Pétur var með 17 stig, fjögur fráköst og sex stoðsendingar og Viðar skilaði 13 stigum og 17 fráköstum.
Það verður svo að koma í ljós hvernig þremenningarnir koma undan leiknum í gær en Tindastólsliðið má ekki við fleiri skakkaföllum. Myron Dempsey spilaði ekki tvo fyrstu leikina gegn KR og þá hefur Darrell Flake glímt við meiðsli og var draghaltur bróðurpartinn af öðrum leiknum á fimmtudaginn.
Leikur KR og Tindastóls hefst klukkan 19:15 í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Tengdar fréttir

Ekkert félag hefur beðið lengur en Tindastóll
Tindstóll spilar í kvöld sinn fyrsta leik í lokaúrslitum í fjórtán ár þegar liðið heimsækir ríkjandi Íslandsmeistara KR í DHL-höllina í Vesturbænum.

Lewis er ekki að hætta: Aldur er bara tala
Nýliðar Tindastóls eru komnir í úrslitaeinvígi Domino's-deildar karla í körfubolta og stóran þátt í því á hinn 39 ára gamli Darrel Lewis sem hefur farið á kostum í vetur. Hann er ekki að spila síðustu leiki ferilsins.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Tindastóll 94-74 | Meistararnir komust í 1-0 með 20 stiga sigri
KR valtaði yfir Tindastól, 94-74, í fyrsta leik liðanna í lokaúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta í DHL-höllinni í kvöld.

„Nánast engar líkur“ að Dempsey spili í kvöld
Aðastoðarþjálfari Tindastóls reiknar ekki með Bandaríkjamanninum í leiknum gegn KR á Sauðárkróki.

Dempsey gat horft á leikinn | Rúða splundraðist í rútunni
Myron Dempsey að bíða út í bíl á meðan Tindastóll spilaði við KR í vesturbæ Reykjavíkur í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - KR 80-72 | Flake og frábær barátta var of mikið fyrir KR
Tindastóll jafnaði metin í 1-1 í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Dominos-deild karla í körfubolta eftir átta stiga sigur á KR, 80-72, í öðrum leiknum í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Tindastóll 104-91 | Yfirburðir hjá KR og 2-1 forysta
KR vann annan sannfærandi sigur á heimavelli í lokaúrslitunum gegn Tindastóli og er komið með 2-1 forystu.

Stólarnir hafa steinlegið í fjórum af fimm leikjum sínum í lokaúrslitum
Tindastóll byrjaði ekki vel í úrslitaeinvíginu á móti KR þegar liðið tapaði með tuttugu stigum á móti Íslandsmeisturunum í DHL-höllinni í gærkvöldi.

Styttist í sauðburð þannig við þurfum að klára þetta sem fyrst
Úrslitarimma KR og Tindastóls í Domino's-deild karla hefst í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Stólarnir hafa ekki verið í lokaúrslitum í 14 ár, en þá spilaði með liðinu núverandi aðstoðarþjálfari liðsins, Kári Marísson.

Metyfirburðir KR í fráköstum
Leikur tvö hjá KR og Tindastól er á Króknum í kvöld.