Golf

Jöfn toppbarátta eftir fyrsta hring á Players

Hideki Matsuyama á fyrsta hring í kvöld.
Hideki Matsuyama á fyrsta hring í kvöld. Getty
Players meistaramótið hófst í dag en allir bestu kylfingar heims eru mættir til leiks og keppa um himinháar fjárhæðir í einu stærsta móti ársins.

Eftir fyrsta hring leiða þeir Kevin Na, Charley Hoffman, David Hearn og Hideki Matsyuama á fimm höggum undir pari en þeir léku TPC Sawgrass völlinn á 67 höggum.

Ógrynni kylfinga koma skammt á eftir þeim en eins og alltaf á Players eru mörg stærstu nöfnin í golfheiminum við toppinn á skortöflunni.

Þar má meðal annars nefna Ricky Fowler, Sergio Garcia, Martin Kaymer, Jason Day og Rory McIlroy en þeir léku allir á 69 höggum eða þremur höggum undir pari.

Það gekk þó ekki vel hjá öllum en Masters meistarinn Jordan Spieth kom inn á 75 höggum eða þremur yfir pari sem er hans versta skor á PGA-mótaröðinni á árinu.

Tiger Woods var heldur ekki að gera neinar rósir en hann nældi sér í tvo tvöfalda skolla á fyrsta hring þar sem upphafshöggin hjá honum voru ekki upp á marga fiska.

Hann fékk þó nokkra góða fugla, sérstaklega á hinni frægu 17. holu þar sem hann vippaði í fyrir framan rúmlega 20.000 áhorfendur en hann kláraði hringinn á 73 höggum eða einu yfir pari.

Útsending frá öðrum hring hefst á morgun klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×