Helena snýr heim og verður hluti af þjálfaraþríeyki Hauka Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. maí 2015 12:10 Helena Sverrisdóttir er komin heim. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir er komin heim í Hauka eins og vitað var, en hún hefur verið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og síðar í atvinnumennsku undanfarin sjö ár. Helena gerði tveggja ára samning við Haukana í dag, en skrifað var undir á blaðamannafundi í Schenker-höllinni. Hún þjálfar liðið samhliða Ingvari Þór Guðjónssyni og Andra Þór Kristinssyni sem báðir gerðu eins árs samning við Haukaliðið. Þetta er mikill hvalreki fyrir íslenskan körfubolta enda Helena verið besti leikmaður Íslands um árabil. Hún hefur undanfarin tíu ár verið kjörin körfuknattleikskona ársins. Haukar töpuðu í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna gegn Keflavík, 3-0, á nýafstaðinni leiktíð, en liðið komst í úrslit í fyrra þar sem það tapaði, 3-0, fyrir Snæfelli. Haukar urðu síðast meistarar árið 2009, en unnu einnig 2006 og 2007 þegar Helena var fyrirliði liðsins. Helena var kjörinn besti leikmaður efstu deildar síðustu þrjú árin sín í deildinni þegar hún var 17, 18 og 19 ára. Auk Íslandsmeistaratitlanna tveggja vann hún einnig bikarinn 2005 og 2007. Hún er stigahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi með 889 stig í 51 landsleik eða 17,4 stig í leik. Síðast þegar Helena spilaði í Dominos-deildinni skoraði hún 21,2 stig að meðaltali í leik, tók 7,3 fráköst og gaf 9,8 stoðsendingar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira