Listaverk á brjóstunum sigga dögg skrifar 21. maí 2015 11:00 Vísir/Skjáskot
Leikkonan og leikstýran Angelina Jolie komst í heimspressuna þegar hún greindi frá ákvörðun sinni að gangast undir tvöfalt brjóstnám í kjölfar þess að læknar greindu henni frá auknum líkum þess að hún myndi fá brjóstakrabbamein sem gæti dregið hana til dauða líkt og hafði gerst fyrir hennar móður. Brjóstakrabbamein er það krabbamein sem er algengast meðal kvenna, samkvæmt vefnum Brjóstakrabbamein.is. Það er bæði mikilvægt að þreifa sjálf og fara á leitarstöð krabbameins og fá þar faglega þreifingu.Vísir/SkjáskotBrjóstnám getur verið þarft fyrir sumar konur en þá er mismikið af brjóstinu fjarlægt og sumar kjósa í kjölfarið að láta endurbyggja brjóstið eða endurmóta brjóstið, og aðrar ekki. Nú hafa margir sérfræðingar í húðflúri sérhæft sig í að breyta brjósti og örum eftir skurðinn í listaverk.Vísir/SkjáskotFyrir fleiri hugmyndir um hvernig húðflúr mætti velja til að prýða brjóstkassann, hylja eða prýða örið og brjóstið er urmull af tillögum á pinterest svo hver og ein ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þú þarft ekki að fara í endurbyggingu til að nýta þér húðflúr og getur verið prýði af því að skreyta líkamann.Vísir/SkjáskotHér má sjá brjóst fljótt eftir uppskurð og á þau vantar geirvörtur og örin eru sýnileg.Vísir/SkjáskotHér má sjá hvað hægt er að gera á einum degi með aðstoð húðflúrslistaverks
Heilsa Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið