Veiði

Fyrsti laxinn kominn í Laxá í Kjós

Karl Lúðvíksson skrifar
Jón Þór Júlíusson leigutaki Laxá Í Kjós með fallegan lax fyrstu dagana í fyrra.
Jón Þór Júlíusson leigutaki Laxá Í Kjós með fallegan lax fyrstu dagana í fyrra.
Það er huti af vorhefð íbúa við Laxá í Kjós að stoppa aðeins við á brúnni við ánna á þessum tíma og kíkja í nokkrar holur og sjá hvort laxinn sé farinn að ganga.

Það er nokkuð árvisst að sjá laxa um miðjan maí í ánni og hefur verið þannig lengi svo það kemur ekki á óvart að heyra fregnir að fyrstu laxarnir hafi látið sjá sig í ánni.  Kristján Einarsson tók bíltúr inní Hvalfjörð í gær eftir að hafa heyrt fregnir að sést hafi til fyrstu laxana í ánni.  "Ég stoppaði við brúnna og kíkti á þessar holur sem hann leggst oft í þegar hann er að ganga en sá ekkert.  Það sást ágætlega í ánna þrátt fyrir að hún sé nokkuð vatnsmikil" sagði Kristján þegar við ræddum við hann í morgun.

"Ég skoðaði svæðið við Kvíslafoss í 10 mínútur en sá ekkert svo ég tók smá bíltúr upp að Þórufossi og svo til baka.  Í bakaleiðinni stoppaði ég aftur á brúnni og þá lágu tveir svo greinilega nýgengnir undir stólpanum vestan meginn.  Tveir fagurbláir tveggja ára laxar" bætti Kristján við. Laxá í Kjós opnar 20. júní og ef það týnast inn laxar á næstunni verður ekkert ólíklegt að veiðimenn verði varir við laxa á efstu sem neðstusvæðum Laxár.  






×