Golf

Þrír efstir og jafnir á Byron Nelson

Jordan Spieth tekur upphafshögg á 14. holu sem stytt var vegna rigningar.
Jordan Spieth tekur upphafshögg á 14. holu sem stytt var vegna rigningar. vísir/getty
Þrír menn voru efstir og jafnir á Byron Nelson golfmótinu í Texas þegar keppni var hætt í gærkvöldi. Fresta þurfi upphafi annars hrings í gær vegna rigningar og því munu 33 leikmenn klára annan hring í dag. Jimmy Walker, Steven Bowditch og Jon Curran eru allir á níu höggum undir pari.

Jordan Spieth, sigurvegari á Mastersmótinu í apríl, er á sex höggum undir pari eftir tvo hringi en hann endaði leik sinn í gær með því að fá þrjá fugla á síðustu þremur holunum.

"Ég er a.m.k. kominn í stöðu þar sem ég get látið í mér heyra. Ég þarf að spila eins vel og ég gerði í dag til að eiga möguleika á að vinna. Ég á enn möguleika. Við sjáum hvað setur," sagði Spieth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×