Golf

Jordan Spieth í toppbaráttunni á Memorial - Tiger í basli

Tiger bjargaði hringnum á seinni níu.
Tiger bjargaði hringnum á seinni níu. Getty
Bandaríkjamaðurinn Bo Van Pelt og Japaninn Hideki Matsuyama leiða Memorial mótið sem fram fer á Muirfield vellinum en þeir léku fyrsta hring á 64 höggum eða átta undir pari.

Russell Knox og Jason Dufner deila þriðja sætinu á sex höggum undir en mörg góð skor sáust á fyrsta hring.

Næst besti kylfingur heims, Jordan Spieth, lék einnig vel á fyrsta hring en hann kom inn á 68 höggum eða fjórum undir pari.

Tiger Woods er meðal þátttakenda en hann er neðarlega á skortöflunni á einu höggi yfir pari.

Woods byrjaði mjög illa og fékk fjóra skolla og einn tvöfaldan skolla á fyrri níu holunum en hann vann sig til baka á þeim seinni og gæti með góðum öðrum hring náð niðurskurðinum.

Phil Mickelson fann sig heldur ekki á fyrsta hring og er á sléttu pari en bein útsending frá öðrum hring hefst í kvöld klukkan 18:30 á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×