Margrét mætt á Smáþjóðaleika á ný eftir 24 ára fjarveru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2015 15:45 Margrét Sturlaugsdóttir með stelpunum. mynd/kkí.is
Það eru nú liðin 24 ár síðan að Margrét Sturlaugsdóttir tók síðast þátt í Smáþjóðaleikunum. Margrét er aðstoðarþjálfari Ívars Ásgrímssonar alveg eins og í fyrrasumar en Margrét hefur einnig tekið við kvennaliði Keflavíkur og mun þjálfa liðið í Dominos-deildinni næsta vetur. Margrét var með á bæði á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989 og Smáþjóðaleikunum í Andorra 1991 en þetta var í tvö fyrstu skiptin sem íslenska kvennalandsliðið var með á Smáþjóðaleikunum. Margrét vann silfur með liðinu á Kýpur 1989 og brons í Andorra tveimur árum síðar og getur nú vonandi fullkomnað safnið, það er með því að ná gullinu á leikunum í ár. Margrét var aðeins önnur tveggja leikmanna sem spiluðu sex fyrstu leiki íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum en hin var Anna María Sveinsdóttir. Anna María Sveinsdóttir var einmitt aðstoðarþjálfari íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg fyrir tveimur árum. Margrét skoraði 10 stig og tvær þriggja stiga körfur í þremur leikjum á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989 og var síðan með 14 stig og eina þriggja stiga körfu Smáþjóðaleikunum í Andorra 1991. Margrét skoraði tvær fyrstu þriggja stiga körfur íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum sem komu báðar í sigurleik á móti Mónakó á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989. Stelpurnar okkar spila við Möltu í kvöld kl. 19.30 og síðan við Mónakó á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 17.00) og svo lokaleikinn sinn á móti Lúxemborg á laugardeginum 6. júní (klukkan 13.30).
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Sjá meira