Fótbolti

Alfreð fer til Olympiacos á láni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason spilar í Grikklandi á næstu leiktíð.
Alfreð Finnbogason spilar í Grikklandi á næstu leiktíð. v´siir/getty
Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í fótbolta, spilar með Olympiacos í Grikklandi á næstu leiktíð, en þetta kemur fram á mbl.is.

Alfreð fer í læknisskoðun hjá grísku meisturunum á morgun og skrifar í kjölfarið undir samnining við félagið, en um er að ræða eins árs lánssamning.

Íslenski framherjinn er á mála hjá Real Sociedad á Spáni, en hann var ekki í aðalhlutverki hjá liðinu á síðustu leiktíð.

Alfreð mun spila í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í vetur, en grísku meistararnir eru með sæti í riðlakeppninni.

Olympiacos er með forkaupsrétt á Alfreð eftir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×