Valinn af Los Angeles Lakers en spilar með Keflavík í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2015 15:00 Chu Maduabum spilar með Keflavík í vetur. Vísir/Getty
Keflvíkingar hafa náð samkomulagi við bandarískan leikmann fyrir komandi leiktíð í Dominos-deildinni og þessi nýi kani liðsins er tengdur NBA-deildinni.Körfuboltavefurinn Sportando segir frá því að miðherjinn Chu Maduabum hafi samið við Keflavíkurliðið um að spila með liðinu tímabilið 2015-16. NBA-liðið Los Angeles Lakers valdi Chu Maduabum í nýliðavalinu árið 2011 en Lakers-menn tóku hann númer 56 í nýliðavalinu fyrir fimm árum. Chu Maduabum spilaði reyndar aldrei í NBA-deildinni þrátt fyrir að hafa verið skipt frá Lakers til Denver Nuggets. Hann spilaði í D-deildinni og hefur síðan flakkað á milli liða í Katar, Eistlandi og Mongólíu. Í febrúarmánuði síðastliðnum var hann samt óvænt hluti af skiptum Philadelphia 76ers og Denver Nuggets. 76ers á þar með réttinn á honum spili hann í NBA-deildinni. Maduabum segist sjálfur í viðtali í sumar að hann ætli sér að komast aftur í NBA-deildina. Chukwudiebere Maduabum eins og hann heitir fullu nafni er 24 ára gamall og 206 sentímetrar á hæð. Hann er fæddur í Nígeríu og spilaði síðast með eistneska liðinu Tallinna Kalev þar sem hann var með 7,6 stig og 5,1 frákast að meðaltali í leik.
Dominos-deild karla NBA Mest lesið Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Fótbolti Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Körfubolti Þróttur skoraði sex og flaug áfram Íslenski boltinn Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Fótbolti Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Valur marði Fram í framlengingu Íslenski boltinn Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Íslenski boltinn Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Enski boltinn Fleiri fréttir Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Stóð við stóru orðin og fór í átta klukkutíma göngutúr heim til sín Miðasala á Dúllubar í dag og VIP-miðar á 15.000 krónur „Helmingurinn af liðinu var veikur“ Ægir Þór: Við vorum heilt yfir miklu betri Uppgjör: Tindastóll-Stjarnan 93-90 | Stólarnir með ótrúlega endurkomu í blálokin Deandre Kane áfram með Grindvíkingum Martin flottur þegar Alba Berlín vann lokaleikinn „Myndi frekar vilja hafa þetta svona heldur en þar sem öllum er drullusama“ Ísböð komu í veg fyrir að Haukar yrðu meistarar Önnur endurkoma hjá Knicks og OKC hamfletti Nuggets Reynsluboltinn verður nýliði í Síkinu í kvöld Sjá meira