Hrafnhildur setti aftur Íslandsmet en þarf að synda aukasund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2015 15:35 Hrafnhildur Lúthersdóttir. Vísir/Stefán
Hrafnhildur Lúthersdóttir þarf að synda sérstakt aukasund um sæti í úrslitasundi 200 metra bringusundi á HM í Kazan í Rússlandi í dag. Hrafnhildur setti nýtt Íslandsmet með því að synda á 2.23.06 mínútum í undanúrslitunum en varð jöfn kínversku stelpunni Jinglin Shi í áttunda sæti. Hrafnhildur var á eftir Jinglin Shi á fyrstu 150 metrum sundsins en náði henni á síðustu 50 metrunum. Það er bara pláss fyrir átta sundkonur í úrslitasundinu á morgun og þær Hrafnhildur og Jinglin Shi þurfa því að synda aftur eftir síðustu grein í kvöld þar sem sigurvegarinn kemst í úrslitasundið. Þetta var annað Íslandsmetið hjá Hrafnhildi í dag en hún synti á 2.23.54 mínútum í undanrásum sem var líka nýtt Íslandsmet. Danska stelpan Rikke Moller Perdersen náði bestum tíma í undanúrslitunum en hún synti á 2:21.99 mínútum og náði betri en bandaríska stelpan Micah Lawrence og japanska stelpan Kanako Watanabe.Anton Sveinn McKee varð í 13. sæti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi en hann synti á 2:10.79 mínútum sem er aðeins slakari tími en þegar hann setti nýtt Íslandsmet í undanrásunum í morgun. Anton Sveinn var þarna að ná sínum besta árangri á HM í 50 metra laug.
Sund Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti