Lewis Hamilton á ráspól í Belgíu Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 22. ágúst 2015 12:49 Lewis Hamilton tryggði sér ráspólsbikarinn í dag. Tímabilið er rétt hálfnað en egnin getur náð honum. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í Belgíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams þriðji. 16 sinnum í síðustu 47 keppnum á Spa hefur ökumaður á ráspól unnið keppnina. Mercedes menn tóku snemma forystu í fyrstu lotu á millihörðum dekkjum. Sergio Perez átti hraðasta hring um tíma eftir að hann fór út á mjúkum dekkjum.Will Stevens og Roberto Merhi á Manor duttu út í fyrstu lotu ásamt Jenson Button og Fernando Alonso á McLaren og Felipe Nasr á Sauber. Mercedes menn náðu toppsætunum tveimur á millihörðum dekkjum.Max Verstappen sat í bílskúrnum í annarri lotu. Það þurfti að skipta um vél í bíl hans.Vísir/GettyMcLaren sætir samtals 105 sæta víti eftir tímatökuna. Button verður færður aftur um 50 sæti og Alonso 55. Safnast þegar saman kemur og þegar allt er sett nýtt í vélina hrúgast vítin upp.Kimi Raikkonen stöðvaði í brautarkanti, Ferrari bíllinn drap á sér. „Það bilaði eitthvað,“ sagði Raikkonen í talstöðinni. Rauðum flöggum varð veifað í kjölfarið og tímatakan stöðvuð á meðan bíllinn var fjarlægður.Max Verstappen ákvað að fara ekki út í annarri lotu. Hann átti eftir að færast aftur um 10 sæti og fá nýja vél. Það var tilgangslaust að mati Toro Rosso að reyna að lágmarka skaðann. Raikkonen og Verstappen komust ekki áfram. Auk þeirra sátu eftir Nico Hulkenberg á Force India, Daniil Kvyat á Red Bull og Marcus Ericsson á Sauber.Rosberg reyndi allt en ekkert dugði til að snúa á Hamilton í dag.Vísir/GettyBaráttan um ráspól var á milli Mercedes ökumannanna. Hamilton var á undan út á brautina og setti góðan tíma, 1:47,449. Rosberg gat ekki svarað í fyrstu tilraun lotunnar heldur endaði á 1:47,895. Hann gerði augljós mistök og átti inni msimuninn og meira til. Rosberg reyndi sitt besta en það dugði ekki til. Hraði Sebastian Vettel á Ferrari bílnum virtist hverfa í lokatilrauninni. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á morgun, sunnudag.Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.
Formúla Tengdar fréttir Rosberg fljótastur á föstudagsæfingum Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins, hann byrjaði illa á fyrri æfingunni. Seinni æfing hans endaði skyndilega þegar dekk sprakk á mikilli ferð. 21. ágúst 2015 19:30 Ferrari: Tvær unnar keppnir sanna ekki snilli okkar Ferrari er með báðar fætur á jörðinni fyrir seinni hluta tímabilsins, þrátt fyrir að hafa unnið tvær keppnir á tímabilinu. 18. ágúst 2015 23:00 Honda setur markið á Ferrari Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina. 17. ágúst 2015 22:11 Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016 Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu. 19. ágúst 2015 21:30 McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina. 20. ágúst 2015 22:01 Mest lesið Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Handbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Handbolti Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Körfubolti „Hann hefði bara átt að kyngja þessu, vera stór og halda áfram úti“ Körfubolti Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Handbolti KR í samstarf við akademíu í Gana Fótbolti Áhugamaður vann meistarann og milljón dollara Sport Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ Handbolti Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Fótbolti Fleiri fréttir F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Telur samstarf Hamilton og Ferrari nálgast þolmörk Portúgal í stað Hollands í Formúlu 1 Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Stórar breytingar og tímamót hjá Red Bull Heimsmeistarinn vill gleyma því að hann keyri í Formúlu 1 Sjáðu hamaganginn þegar Norris varð heimsmeistari í fyrsta sinn Klökkur Norris: „Ég er ekki að gráta“ Lando Norris er Formúlu 1 heimsmeistari í fyrsta sinn Svona verða Norris, Verstappen eða Piastri heimsmeistarar í dag Verstappen á ráspól og allt opið í lokakeppninni McLaren ætlar að nota heilbrigða skynsemi í ákvörðunum sínum Verstappen fær nýjan liðsfélaga Hótað lífláti eftir mistökin Reiður eftir ásakanir um svindl: „Hversu heilalaus þarftu að vera?“ Sjá meira
Rosberg fljótastur á föstudagsæfingum Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins, hann byrjaði illa á fyrri æfingunni. Seinni æfing hans endaði skyndilega þegar dekk sprakk á mikilli ferð. 21. ágúst 2015 19:30
Ferrari: Tvær unnar keppnir sanna ekki snilli okkar Ferrari er með báðar fætur á jörðinni fyrir seinni hluta tímabilsins, þrátt fyrir að hafa unnið tvær keppnir á tímabilinu. 18. ágúst 2015 23:00
Honda setur markið á Ferrari Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina. 17. ágúst 2015 22:11
Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016 Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu. 19. ágúst 2015 21:30
McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina. 20. ágúst 2015 22:01