„Hann verður að vera fínn. Þetta eru smókingföt úr klassísku línunni okkur. Þau passa vel á rauða dregilinn,“ segir Guðmundur Jörundsson í samtali við blaðamann.
„Baltasar mun fara víða með þessa mynd og fékk mikið af fötum frá okkur fyrir þetta ferðalag. Lilja fékk líka föt frá okkur þannig að það verður gaman að fylgjast með.“
Baltasar og eiginkona hans, Lilja Pálmadóttir eru stödd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum en þar verður nýjasta mynd Baltasars, Everest frumsýnd í kvöld.
Þangað voru þau mætt ásamt aðalleikurum myndarinnar Jake Gyllenhaal, Josh Brolin, Keira Knightly og Robin Wright.
Myndin verður frumsýnd hér á landi þann 18.september.
Baltasar Kormákur looking sharp in his JÖR tuxedo suit on the red carpet for his premiere of Everest at The Venice Film Festival 2015. #JÖR #baltasarkormakur #everest #venicefilmfestival
A photo posted by JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON (@jor_by_gudmundurjorundsson) on Sep 2, 2015 at 12:17pm PDT
