Golf

Tiger Woods fór í aðra aðgerð - Verður frá út árið

Það ætlar ekki af Tiger að ganga
Það ætlar ekki af Tiger að ganga AP
Tiger Woods fór í aðgerð á baki á miðvikudaginn og verður frá keppni út árið en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem hann gaf út seint í gær.

Tiger hefur gengið í gegn um mikið undanfarin þrjú ár en hann sigraði fimm sinnum á PGA-mótaröðinni árið 2013, lenti í slæmum bakmeiðslum í fyrra og í ár hefur hann verið í miklu basli með sveifluna og spilað mjög illa.

Hann segir þó að markmiðið sé að snúa sem fyrst til baka en hann stefnir á að hefja keppnistímabilið í janúar á næsta ári.

„Þetta eru vissulega vonbrigði en ég mun reyna að gera mitt besta til að koma sterkur til baka. Læknarnir mínir hafa sagt mér að ég muni ná fullum bata og mig hlakkar til þess að spila golf aftur þrátt fyrir að það sé leiðinlegt að missa af stórum mótum á meðan.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×