Tollur á frostpinna verndar Kjörís og Emmess Óli Kristján Ármannsson skrifar 17. september 2015 09:00 Ásgeir Baldursson, eigandi og framkvæmdastjóri Ísbílsins, með innlendan og útlendan ís í hendinni. vísir/daníel
Vandséð er af hverju frostpinnar ættu að bera toll fremur en sælgæti, segir Ásgeir Baldursson, eigandi og framkvæmdastjóri Ísbílsins. „Það eru bara Emmess og Kjörís sem njóta verndar af tolli sem leggst á vatn með bragðefni.“ Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs er gert ráð fyrir afnámi tolla á föt og skó, en þar fylgir með ein breyting sem snýr að matvælum, niðurfelling tolls af nokkrum tegundum af mjólkurlausum ís. Í skýringum með frumvarpinu kemur fram að með því eigi að rétta hlut fólks með mjólkurofnæmi eða -óþol. Breytingar hafi verið gerðar á lögum í fyrra og athugasemdir borist vegna þess að þær náðu ekki til mjólkurlauss íss. Talin eru upp innihaldsefni sem breytingin nær yfir, svo sem sojabaunir, hrísgrjón, hafrar, hnetur og/eða möndlur. „Það er dálítið sérkennileg árátta hjá íslenskum löggjafa að telja upp öll atriði sem lögin geta átt við, fremur en að orða lögin með almennari hætti,“ segir Ásgeir og hefði talið eðlilegra að orða breytinguna þannig að hún næði yfir „allan ís sem ekki er framleiddur úr mjólkurvörum“. Útundan í upptalningu frumvarpsins er til dæmis ís sem framleiddur er úr kókos, sem og ís úr ávaxtaþykkni. Hann geri hins vegar ráð fyrir því að „vegan“ ís sem Ísbíllinn hafi flutt inn lækki umtalsvert í verði og hætti að vera dýrari en hefðbundinn ís, enda beri þessar vörur 30 prósenta toll, auk þess sem á þær leggist 110 króna verðtollur á hvert kíló/lítra. „En ég geri ráð fyrir að tollskýrslan verði talsvert flóknari ef sumt er undanþegið tolli,“ bætir hann við. Skrítnast finnist honum samt að ís sem að uppistöðu sé ávaxtamauk, önnur tegund af „vegan“ ís sem Ísbíllinn hafi boðið upp á, verði með fullum tollum áfram. Annars segist Ásgeir ekki hafa miklar áhyggjur af þessum tollamálum. „Það er erfitt að hafa skoðun á þessum tolla- og skattabreytingum sem eru orðnar eitthvað yfir tvö hundruð frá hruni. Maður vinnur bara með það umhverfi sem er og telji stjórnvöld nauðsynlegt að styðja svona við innlenda framleiðslu þá mega þessir herrar víst gera það.“Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.Vísir/VGTollheimta sem ekkert verndar Um leið og Félag atvinnurekenda fagna því að fjármálaráðherra hafi lagt til við Alþingi að felldir verði niður tollar af nokkrum tegundum af mjólkurlausum ís, harmar Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri samtakanna, að ekki skuli gengið enn lengra. Bæði sé listi innihaldsefna ekki tæmandi og áfram gert ráð fyrir að tollar leggist af fullum þunga á ís sem inniheldur enga mjólk eða mjólkurlíki af neinu tagi, heldur sé búinn til úr vatni, sykri, litarefnum og bragðefnum, svo sem frostpinnar og sorbet af ýmsu tagi. „Sú tollheimta verndar nákvæmlega ekki neitt og því er algerlega fráleitt að íslenskir neytendur séu að borga verndartolla af vatni, litarefnum og bragðefnum sem eiga ekkert skylt við íslenskan landbúnað,“ segir hann.Með breytingunni örli engu að síður á viðurkenningu stjórnvalda á því að ekki eigi að leggja verndartolla á matvöru sem ekki eigi sér samsvörun í innlendri búvöruframleiðslu og því beri að fagna. Frostpinnatollur sé þó klárlega verndartollur fyrir innlendan iðnað frekar en innlendan landbúnað.
Alþingi Fjárlagafrumvarp 2016 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira