Fitufordómar eru algengir í vestrænu samfélagi og birtast þeir bæði beint þar sem fólk úthúðar feitu fólki með orðum og gjörðum en einnig faglega þegar feiti fólki er meinað um störf og neitað um launahækkanir.
Þá eru feit börn í mestri hættu á að verða lögð í einelti í skóla og feitu fólki er gjarnan meinað um sjúkraþjónustu.
Óbeinir fordómar eru ýmsar hugsanavillur líkt og að feitt fólk sé latt og/eða með litla sjálfstjórn.
Íslenskar nemarannsóknir benda til þess að fólk sem veltir útliti sínu mikið fyrir sér og ber sig saman við aðra er líklegra til að vera haldið fitufordómum.
Það að vera með fitufordóma þýðir því í raun og veru að þú eignar fólki ákveðna hegðun og hugsanir út frá útliti þeirra einu saman.
Umræðan um hollustu og heilsu hefur undanfarið snúist meira um útlit frekar en hreysti því rannsóknir sýna að það er vel hægt að vera í holdum og vera heilbrigður. Þá er það að vera grannur ekki ávísun á heilbrigði.
Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur er fremst í flokki hér á landi í að fjalla um þennan málaflokk og komin er tími til.
Það er mikilvægt að líta í eigin barm þegar kemur að eigin fordómum en einnig að velta því fyrir sér hvað felist í heilbrigðum lífstíl annað en útskornar línur og mittismál?
Svo má líka alltaf velta því fyrir sér hvort útlit og lífstíll annarra komi manni raunverulega við?
Vertu hluti af breyttum og manneskjulegri hugsanahætti því flest allt sem þér hefur verið sagt um fitu er í raun lygi.
Í spilaranum að ofan má heyra umræðu um fitufordóma úr Morgunþættinum á FM957.
