„Það er erfitt að segja eitthvað eitt um þetta leikrit nema að það er hlaðið spennu. Ég hugsa að það komi fólki á óvart,“ segir Ingvar. „Þó ég hafi þekkt það áður þá varð ég undrandi á hvað það er brútalt og átökin mikil.“
Ingvar er í hlutverki slátrara. Það út af fyrir sig á eflaust að segja manni eitthvað um persónuna.
„Já, Max hefur unnið sem slátrari allt sitt líf. Það starf hefur gengið mann fram af manni innan fjölskyldunnar, faðir hans var slátrari og afi hans var slátrari. En það er líka hægt að heimfæra starfsgreinina upp á hvað sem er og maður fer að spyrja sig – er Pinter kannski að meina eitthvað annað, var Max ekki slátrari heldur hórmangari, eiturlyfjabarón eða í mansali? Var hann að slátra fólki en ekki svínum?
Hlutverk Max slátrara stórt? Já, það er mjög stórt. Við höfum öll mikið vægi á sviðinu.“

„Nei, það þarf ekkert að breyta verkinu, það steinliggur eins og það er og getur gerst hvenær sem er. Á kannski alveg jafn mikið erindi núna og 1965, jafnvel meira.“
Ingvar hefur kynnst Pinter áður sem höfundi.
„Við vorum tveir eða þrír sem tókum Pinter-verk sem einstaklingsverkefni í leiklistarskólanum. Síðan hef ég leikið í tveimur verkum eftir hann í stóru leikhúsunum, í Svikum í leikstjórn Eddu Heiðrúnar í Borgarleikhúsinu og í Afmælisveislunni í leikstjórn Guðjóns Pedersen í Þjóðleikhúsinu. Þetta er þriðja stóra sýningin.“
Ingvar rifjar upp að Heimkoman hafi verið flutt áður hér á landi. „Það var til dæmis fræg sýning hér í Gamla bíói 86-7 hjá P-leikhópnum sem lék bara verk Pinters. Þá var Hjalti Rögnvaldsson búinn að vera lengi í útlöndum og kom heim sérstaklega til að leika í þessu verki. Við sem vorum í skólanum þá höfðum heyrt svo mikið talað um Hjalta Rögnvalds svo það var kærkomið að fá að horfa á hann, heim kominn sérstaklega til að leika í Heimkomunni. Hann brilleraði í þessari sýningu. Björn Hlynur leikur hans rullu núna en Róbert Arnfinnsson lék slátrarann þá.“