Golf

Hank Haney: Sjaldan séð hæfileikaríkari kylfing heldur en Jason Day

Haney og Woods þegar allt lék í lyndi.
Haney og Woods þegar allt lék í lyndi. Getty
Hank Haney er golfáhugamönnum kunnur en hann er einn frægasti þjálfarinn í bransanum.

Hann var þjálfari hjá Tiger Woods á meðan að hann sigraði sex risamót, en skrifaði svo bók um tíma sinn með Tiger sem þótti afar umdeild.

Haney er ekki þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum en í nýlegu viðtali við dagblaðið The Scotsman gefur hann álit sitt á nokkrum vinsælustu kylfingum heims.

Þegar að við tölum um Rory McIlroy, Jason Day, Jordan Spieth og Rickie Fowler þá erum við að tala um mjög mismunandi íþróttamenn.

Jordan Spieth er magnaður á flötunum og það á eftir að skila honum fleiri risatitlum, ég set samt spurningamerki við högglengdina hans og velti fyrir mér hvort að hann slái nógu langt. Rory McIlroy slær fáránlega langt og er einn hæfileikaríkasti kylfingur heims, en ég veit ekki hversu ákveðinn hann er í að vera sá besti, hann virðist hafa áhuga á svo mörgu öðru að ég held að það trufli hann á golfvellinum.

Haney telur einnig að Fowler þurfi að bæta sig mikið til þess að geta gert atlögu að hinum þremur.

Rickie Fowler er frábær kylfingur en hann er ekki í sama klassa og hinir þrír, hann er búin að læra að vinna en hann er ekki nógu stöðugur.

Það er þó ljóst hverjum Haney hefur mestar mætur á.

Jason Day hefur allt. Hann er nýbyrjaður að læra að vinna og blanda sér í baráttuna reglulega og ég held að hann eigi eftir að tróna á toppnum lengi. Hann er svo góður í öllum þáttum leiksins að ég hef sjaldan séð hæfileikaríkari kylfing, hann er bestur af þeim öllum.


Tengdar fréttir

Magnaður Jason Day sigraði á Barclays

Lék lokahringinn eins og sannur meistari og tryggði sér sinn annan sigur í röð eftir að hafa sigrað á PGA-meistaramótinu fyrr í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×