Fyrstu tvær vikurnar í október komu yfir 800 börn sem eru á flótta ein síns liðs til Stokkhólms. Opnað verður athvarf í þessari viku til bráðabirgða fyrir flóttabörn í einu úthverfa borgarinnar.
Gríðarlegur skortur á dvalarstöðum fyrir börnin sem koma til Svíþjóðar hefur leitt til þess að einkafyrirtæki, sem eru milliliðir sveitarfélaga og fjölskyldna sem vilja hýsa börnin, hafa hækkað verð fyrir þjónustu sína umtalsvert.
Sænska blaðið Dagens Nyheter segir að dæmi séu um að sveitarfélag borgi slíku einkafyrirtæki 3.600 sænskar krónur fyrir barn á sólarhring eða 54 þúsund íslenskar krónur. Fjölskyldan sem hefur flóttabarnið á heimili sínu fær um fimmtung þeirrar upphæðar. Haft er eftir fulltrúa eins sveitarfélagsins að vegna þess hversu fljótt þurfi að leysa vandann hafi menn ekki haft tíma til að leita að ódýrari þjónustu. Að mati sveitarfélaga er um þriðjungur af upphæðinni sem einkafyrirtækin fá greidda eðlilegur kostnaður.
Talsmaður fyrirtækisins sem krefur sveitarfélag um 54 þúsund krónur á sólarhring fyrir milligöngu segir að kostnaður fyrir utan þær rúmlega 10 þúsund krónur á sólarhring sem fjölskylda fær fyrir að hafa barn á heimili sínu sé vegna skipulagningar, túlkaþjónustu og flutninga.
Sveitarfélög í Svíþjóð hafa frá því í fyrra greitt slíkum miðlunum um húsnæði yfir hálfan milljarð sænskra króna eða 7,5 milljarða íslenskra króna. Sveitarfélögin geta síðan sótt um greiðslur vegna kostnaðarins hjá sænsku útlendingastofnuninni.
Sænskir fjölmiðlar hafa áður greint frá því að einstaklingar hafi hringt í sveitarfélög og spurt hversu mörg flóttabörn þeir megi hafa á heimilum sínum.
Útlendingastofnunin í Svíþjóð áætlar að fjöldi flóttabarna sem koma ein síns liðs til landsins verði 30 þúsund í ár. Alls er gert ráð fyrir að 140 til 190 þúsund flóttamenn komi til Svíþjóðar í ár.
