Stephen Curry var með 37 stig og 9 stoðsendingar í 115-110 heimasigri Golden State Warriors á Toronto Raptors. Klay Thompson skoraði 19 stig og Andrew Bogut var með 13 stig. Golden State hefur þar með unnið tólf fyrstu leiki sína og síðustu NBA-meistararnir til að ná því voru Michael Jordan og félagar 1996-97.
Toronto Raptors liðið var ekki auðveldur andstæðingur en Golden State missti niður 18 stiga forskot og það var spenna á lokamínútum leiksins. Stephen Curry og Klay Thompson klikkuðu báðir á víti í lokin en það kom ekki að sök og Warriors eru áfram að elta söguna.
Þetta er besta byrjunin í NBA-deildinni síðan að Dallas Mavericks vann fjórtán fyrstu leiki sína tímabilið 2002-03 en nú eru bara þrír sigurleikir í það að Golden State jafni met Washington Capitols liðsins frá 1948-49 og Houston Rockets liðsins frá 1993-94 yfir bestu byrjun sögunnar í NBA-deildinni.
Nýliðinn Kristaps Porzingis setti nýtt persónulegt met með því að skora 29 stig þegar New York Knicks vann 102-94 sigur á Charlotte Hornets. Áhorfendurnir í New York sungu "Por-zing-is! Por-zing-is!," í seinni hálfleiknum en þessi 20 ára og 221 sentímetra hái Letti er heldur betur að slá í gegn í New York. Carmelo Anthony var með 18 stig og 11 fráköst fyrir Knicks en Kemba Walker var atkvæðamestur hjá Charlotte með 31 stig.
Andre Drummond var með 25 stig og 18 fráköst þegar Detroit Pistons vann 104-99 sigur á Cleveland Cavaliers en þetta var annað tap Cleveland-liðsins í röð. LeBron James skoraði 23 af 30 stigum sínum í fyrri hálfleiknum en Detroit gekk vel að loka á hann í þeim seinni.
Ítalinn Danilo Gallinari skoraði 32 stig þegar Denver Nuggets vann 115-98 útisigur á New Orleans Pelicans. Pelíkanarnir töpuðu ekki bara leiknum heldur misstu einnig stjörnuna sína Anthony Davis útaf meidda á vinstri öxl.
Andrew Wiggins var með 24 stig og Zach LaVine bætti við 17 stigum þegar Minnesota Timberwolves vann 103-91 útisigur á Miami Heat. Hassan Whiteside, miðherji Miami, var með 22 stig, 14 fráköst og 10 varin skot í leiknum en Miami tapaði fjórða leikhlutanum 41-22.
Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt
Washington Wizards - Milwaukee Bucks 115-86
Brooklyn Nets - Atlanta Hawks 90-88
Detroit Pistons - Cleveland Cavaliers 104-99
Miami Heat - Minnesota Timberwolves 91-103
New York Knicks - Charlotte Hornets 102-94
New Orleans Pelicans - Denver Nuggets 98-115
Golden State Warriors - Toronto Raptors 115-110