Flugvélin var gerðinni Tecnam og ein af fimm nýju vélum Flugskóla Íslands sem komu til landsins í upphafi mánaðarins. Samband við vélina rofnaði upp úr klukkan þrjú en lögreglu barst tilkynning um slysið um klukkan 15.10. Flak hennar fannst hálftíma síðar.
Talsverður viðbúnaður var vegna slyssins en þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang en ekki var hægt að komast að vélinni nema fótgangandi eða með þyrlu.
Aðdragandi slyssins er óljós en rannsókn stendur yfir.
