Umfjöllun og viðtöl: KR - Snæfell 103-64 | Hólmarar fengu flengingu Henry Birgir Gunnarsson í DHL-höllinni skrifar 12. nóvember 2015 15:25 Ægir Þór Steinarsson, leikstjórnandi KR. vísir/vilhelm
Íslandsmeistarar KR unnu auðveldan sigur er þeir fengu Snæfell í heimsókn í Frostaskjólið í kvöld. KR með yfirburði frá upphafi og vann stórsigur, 103-64. Það var ekkert sérstaklega mikið búið af leiknum er ljóst var í hvað stefndi. KR fljótt komið með tíu stiga forskot en Snæfell náði að minnka muninn í sex stig, 26-20, áður en fyrsti leikhluti var allur. Snæfell spilaði þá enga vörn. KR-ingar löbbuðu auðveldlega í gegn og skoruðu auðveldar körfur. Það var ekki fyrr en á lokamínútum leikhlutans sem Snæfell ákvað að berjast aðeins. Það var í raun algjör lágmarkskrafa. KR svaraði með því að henda í fimmta gaurinn strax í upphafi annars leikhluti. Mikill hraði í þeirra leik og þeir skoruðu 13 stig í röð. Í raun og veru afgreiddu leikinn á þessum kafla. Snæfell átti einfaldlega ekki möguleika á meðan KR spilaði á fullu gasi. Er blásið var til leikhlés var munurinn orðinn 23 stig á liðunum, 55-32. Síðari hálfleikur var algjört formsatriði. Það vissu allir í stúkunni. Líka Bogi Ágústsson sem var að sjálfsögðu mættur á völlinn. Þetta snérist um stolt hjá Snæfelli. Að láta ekki flengja sig of fast. Þeir héldu áfram að reyna en það var einfaldlega við ofurefli að etja. Þegar þriðji leikhlutu var allur var munurinn orðinn aðeins stærri eða 79-49. KR-ingar nýttu fjórða leikhlutann í létta æfingu. Höfðu gaman af hlutunum. Pökkuðu gestunum saman og innsigluðu stóran skyldusigur. KR er nú búið að vinna fimm leiki í röð í deildinni eftir að hafa tapað þeim fyrsta. Snæfell á örugglega ekki eftir að velta sér of mikið upp úr tapinu enda var þetta líklega ekki sá leikur þar sem þeir sáu fram á að fá stig. Sem fyrr var liðsheildin góð hjá KR. Margir að skora og Finnur gat rúllað vel á liðinu. Craion frábær og Björn og Darri líka að spila virkilega vel sem og Ægir. Sigurður Þorvaldsson og Sherrod Wright einir að gera einhverja hluti í Snæfells-liðinu en aðrir höfðu lítið í þennan bardaga að gera. Íslandsmeistarar KR unnu auðveldan sigur er þeir fengu Snæfell í heimsókn í Frostaskjólið í kvöld. KR með yfirburði frá upphafi og vann stórsigur, x-x. Það var ekkert sérstaklega mikið búið af leiknum er ljóst var í hvað stefndi. KR fljótt komið með tíu stiga forskot en Snæfell náði að minnka muninn í sex stig, 26-20, áður en fyrsti leikhluti var allur. Snæfell spilaði þá enga vörn. KR-ingar löbbuðu auðveldlega í gegn og skoruðu auðveldar körfur. Það var ekki fyrr en á lokamínútum leikhlutans sem Snæfell ákvað að berjast aðeins. Það var í raun algjör lágmarkskrafa. KR svaraði með því að henda í fimmta gaurinn strax í upphafi annars leikhluti. Mikill hraði í þeirra leik og þeir skoruðu 13 stig í röð. Í raun og veru afgreiddu leikinn á þessum kafla. Snæfell átti einfaldlega ekki möguleika á meðan KR spilaði á fullu gasi. Er blásið var til leikhlés var munurinn orðinn 23 stig á liðunum, 55-32. Síðari hálfleikur var algjört formsatriði. Það vissu allir í stúkunni. Líka Bogi Ágústsson sem var að sjálfsögðu mættur á völlinn. Þetta snérist um stolt hjá Snæfelli. Að láta ekki flengja sig of fast. Þeir héldu áfram að reyna en það var einfaldlega við ofurefli að etja. Þegar þriðji leikhlutu var allur var munurinn orðinn aðeins stærri eða 79-49. KR-ingar nýttu fjórða leikhlutann í létta æfingu. Höfðu gaman af hlutunum. Pökkuðu gestunum saman og innsigluðu stóran skyldusigur. KR er nú búið að vinna fimm leiki í röð í deildinni eftir að hafa tapað þeim fyrsta. Snæfell á örugglega ekki eftir að velta sér of mikið upp úr tapinu enda var þetta líklega ekki sá leikur þar sem þeir sáu fram á að fá stig. Sem fyrr var liðsheildin góð hjá KR. Margir að skora og Finnur gat rúllað vel á liðinu. Craion frábær og Björn og Darri líka að spila virkilega vel sem og Ægir. Sigurður Þorvaldsson og Sherrod Wright einir að gera einhverja hluti í Snæfells-liðinu en aðrir höfðu lítið í þennan bardaga að gera.KR-Snæfell 103-64 (26-20, 29-12, 21-17, 27-15)KR: Michael Craion 23/15 fráköst/6 stoðsendingar, Björn Kristjánsson 16/4 fráköst, Darri Hilmarsson 15/7 fráköst, Vilhjálmur Kári Jensson 13, Snorri Hrafnkelsson 9/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 9/8 fráköst/10 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 7, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 6/4 fráköst/7 stoðsendingar, Andrés Ísak Hlynsson 3, Jón Hrafn Baldvinsson 2/4 fráköst, Arnór Hermannsson 0/4 fráköst.Snæfell: Sherrod Nigel Wright 18/8 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 15/6 fráköst, Austin Magnus Bracey 11/4 fráköst, Viktor Marínó Alexandersson 8, Stefán Karel Torfason 7/6 fráköst, Jóhann Kristófer Sævarsson 2, Þorbergur Helgi Sæþórsson 2/4 fráköst, Birkir Freyr Björgvinsson 1.Brynjar: Þeir gáfust ansi fljótt upp „Ég gat voðalega lítið. Ég verð nú að viðurkenna það," segir fyrirliði KR, Brynjar Þór Björnsson, brosmildur en hann var að spila sinn 200. leik fyrir KR í kvöld. Hann fann sig engan veginn í tímamótaleiknum. Var með 7 stig og hitti aðeins úr einu af sjö þriggja stiga skotum sínum. „Ég var ekki alveg nógu vel undirbúinn. Var í prófi og svo hefur skrokkurinn verið betri. Það er engu að síður skemmtilegt að hafa náð þessum áfanga og ég er stoltur af þessu afreki. Ég lofa ekki 200 í viðbót samt." KR-ingar þurftu ekki að hafa allt of mikið fyrir sigrinum í þessum leik og hann var í raun eins og æfing fyrir þá. „Við byrjuðum af krafti og náðum strax yfirhöndinni. Þeir misstu trúna í upphafi síðari hálfleiks og mér fannst þeir gefast upp ansi fljótt. Þetta var kannski ekki skemmtilegasti leikurinn til að horfa á eða taka þátt í en mér fannst við spila vel sem lið. Allir sem komu inn skiluðu sínu og rúmlega það. Það er gott að þeir stígi upp er maður getur ekki neitt sjálfur," segir Brynjar og glottir. „Ég held að tapið í fyrsta leik hafi gert okkur gott. Ég sjálfur til að mynda var betur stemmdur eftir það tap. Liðið er í góðu standi og að koma saman. Auðvitað væri gott að hafa Helga Má og Pavel en ég er samt ánægður með hvar liðið stendur í dag."Ingi Þór: Himinn og haf á milli þessara liða „Ég er ekki sammála því að við höfum verið niðurlægðir," segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir 39 stiga tap. „Það er enginn munur í körfubolta." Þó svo það hafi farið svona illa þá var Ingi Þór ánægður með baráttuandann hjá hans liði. „Við hættum ekki og áttum fína kafla inn á milli. Við gerðum eins og við gátum en það er himinn og haf á milli þessara liða eins og staðan er í dag. KR er með feykilega öflugt lið þó svo þeir séu án Helga og Pavels. Það er mikil breidd og gæði í liðinu. Ægir Þór gefur þessu liði síðan svakalega mikið." Ingi segir að Snæfell hafi ekki ráðið við hraðann í KR í þessum leik en hvað getur hann tekið úr svona leik? „Að við náðum að hægja á þeim í svæðisvörninni. Við náðum að koma til baka með einstaka rispum. Við þurfum að vera tilbúnir í næsta leik og förum í hverja einustu orrustu til þess að ná í tvö stig."Tweets by @Visirkarfa1
Dominos-deild karla Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Sjá meira