Körfubolti

Keflavík vann Val | 57 stiga sigur Snæfells

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bryndís Guðmundsdóttir skoraði ellefu stig fyrir Snæfell í kvöld.
Bryndís Guðmundsdóttir skoraði ellefu stig fyrir Snæfell í kvöld. Vísir/Stefán
Snæfell vann í kvöld ótrúlegan 57 stiga sigur á botnliði Hamars í Domino's-deild kvenna, 89-32.

Snæfellingar gáfu tóninn með því að vinna fyrsta leikhlutann, 25-2, og eftirleikurinn var auðveldur. Hamar náði þó að svara með fimmtán stigum í öðrum leikhluta en skoraði svo aðeins þrjú í þeim þriðja.

Haiden Denise Palmer var stigahæst hjá Snæfelli með sautján stig en Gunnhildur Gunnarsdóttir var með fjórtán. Suriya McGuire var atkvæðamest hjá Hamri með átta stig.

Keflavík fór upp við hlið Grindavík og Vals með sigri á síðarnefnda liðinu á heimavelli í kvöld, 71-66.

Liðin skiptust á að halda forystunni í fyrri hálfleik en Keflavík náði að halda henni allan síðari hálfleikinn.

Melissa Zorning skoraði 27 stig fyrir Keflavík og tók ellefu fráköst þar að auki. Hjá Val var Karisma Chapman stigahæst með 26 stig en hún tók einnig átján fráköst.

Keflavík-Valur 71-66 (20-25, 19-12, 25-12, 7-17)

Keflavík: Melissa Zorning 27/11 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 12/8 fráköst/5 varin skot, Marín Laufey Davíðsdóttir 11/12 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 11/4 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 4/5 fráköst, Irena Sól Jónsdóttir 2, Elfa Falsdottir 2, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 2.

Valur: Karisma Chapman 26/18 fráköst/5 varin skot, Hallveig Jónsdóttir 14, Guðbjörg Sverrisdóttir 10/4 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 6, Dagbjört Samúelsdóttir 4/5 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 4, Bergþóra Holton Tómasdóttir 2

Snæfell-Hamar 89-32 (25-2, 23-15, 23-3, 18-12)

Snæfell: Haiden Denise Palmer 17/7 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 15/5 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 11/10 fráköst, Andrea Björt Ólafsdóttir 9, Sara Diljá Sigurðardóttir 8/13 fráköst/5 stolnir, Anna Soffía Lárusdóttir 8, Berglind Gunnarsdóttir 5/4 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2/9 fráköst.

Hamar: Suriya McGuire 8/5 fráköst, Jenný Harðardóttir 6, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 6/12 fráköst, Jóna Sigríður Ólafsdóttir 5, Nína Jenný Kristjánsdóttir 3/3 varin skot, Jóhanna Herdís Sævarsdóttir 2, Vilborg Óttarsdóttir 1, Karen Munda Jónsdóttir 1, Hrafnhildur Magnúsdóttir 0/4 fráköst, Heiða Björg Valdimarsdóttir 0/4 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×